RN Le Pen var á dögunum dæmd í fangelsi fyrir fjármálamisferli.
RN Le Pen var á dögunum dæmd í fangelsi fyrir fjármálamisferli. — AFP/Julien De Rosa
Marine Le Pen, leiðtogi frönsku þjóðfylkingarinnar (RN), heitir því að gefast ekki upp á draumum sínum um forsetaframboð eftir að hafa verið dæmd fyrir pólitískt fjármálamisferli í síðustu viku. Le Pen var dæmd í fjögurra ára fangelsi, þar af tvö ár …

Marine Le Pen, leiðtogi frönsku þjóðfylkingarinnar (RN), heitir því að gefast ekki upp á draumum sínum um forsetaframboð eftir að hafa verið dæmd fyrir pólitískt fjármálamisferli í síðustu viku. Le Pen var dæmd í fjögurra ára fangelsi, þar af tvö ár sem væru skilorðsbundin, og var gert að greiða himinháa sekt en auk þess missir hún kjörgengi í öllum kosningum í fimm ár. Hún hefur þegar áfrýjað dómnum.

„Ég mun ekki gefast upp,“ sagði Le Pen þegar hún ávarpaði stuðningsfólk sitt á samkomu þeirra í frönsku höfuðborginni París í gær. Sagði hún dóminn vera pólitískan og sakaði dómarana um „nornaveiðar“.

„Við erum ekki að biðja um að vera yfir lögin hafin, heldur einfaldlega að þau séu sanngjörn,“ sagði hún enn fremur. Á meðan hrópuðu og kölluðu stuðningsmennirnir “Marine! Marine!“

Forseti frönsku þjóðfylkingarinnar, Jordan Bardella sagðist ekki vilja grafa undan trúverðugleika allra dómara, en sagði þó dóminn til þess gerðan að koma í veg fyrir að Le Pen gæti boðið sig fram í næstu forsetakosningum og að hann væri árás á lýðræði.

„Ef þú stelur, þá borgarðu“

Dómararnir sem komu að máli Le Pen hafa fengið morðhótanir eftir að dómurinn var kveðinn upp.

„Ef þú stelur, þá borgarðu,“ sagði Gabriel Attal, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, um dóminn yfir Le Pen. Þá fordæmdi hann einnig það sem hann telur „fordæmalaus afskipti“ evrópskra hægrisinnaðra leiðtoga af frönskum stjórnmálum, og vísaði þar til stuðningsyfirlýsinga frá Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands við Le Pen.