Ökuskírteini Rafrænt skírteini má nota hér á landi en ekki erlendis.
Ökuskírteini Rafrænt skírteini má nota hér á landi en ekki erlendis. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Um 7.000 manns bíða nú eftir ökuskírteini. Ástæðan er sú að þegar framleiðsla ökuskírteina hófst aftur á Íslandi, eftir að þau höfðu verið framleidd í Ungverjalandi í rúman áratug, safnaðist upp biðlisti

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Um 7.000 manns bíða nú eftir ökuskírteini. Ástæðan er sú að þegar framleiðsla ökuskírteina hófst aftur á Íslandi, eftir að þau höfðu verið framleidd í Ungverjalandi í rúman áratug, safnaðist upp biðlisti. Til þess að vinna á biðlistanum var tekin ákvörðun um að láta framleiða skírteinin í Danmörku. Við gerð skírteinanna urðu mannleg mistök sem leiddu til þess að framleiða þarf skírteinin aftur. Kostnaður vegna þessara mistaka fellur á framleiðandann úti.

Framleiðslan flyst til Íslands

Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri hjá Ríkislögreglustjóra, segir að þeir sem bíði eftir ökuskírteinum geti reiknað með því að þau verði tilbúin í lok næstu viku eða byrjun þarnæstu viku.

Hún segir að nýja framleiðslan á Íslandi gangi vel og tilfærslan á að flytja framleiðsluna heim auki þjónustu við almenning verulega, þar sem biðtími eftir því að fá ökuskírteini fari úr þremur vikum að meðaltali í eina viku.

Margir hafi beðið eftir ökuskírteini á meðan á tilfærslunni stóð en gert er ráð fyrir að flestir fái ökuskírteinin sín um næstu mánaðamót.

Helena segir að þeir sem bíði eftir skírteinum geti notað rafræn skírteini hér heima en plastskírteini þurfi fyrir þá sem aki erlendis.

Í rúman áratug hafa íslensk ökuskírteini verið framleidd í Ungverjalandi en nú hafa ríkislögreglustjóri, sýslumenn og Þjóðskrá Íslands tekið höndum saman og framleiðsla á ökuskírteinum er komin til Íslands.

Höf.: Óskar Bergsson