Íslandspóstur Málefni fyrirtækisins eru til umræðu sem fyrr. Félag atvinnurekenda sakar eftirlitsaðila um að vanrækja eftirlit með Póstinum.
Íslandspóstur Málefni fyrirtækisins eru til umræðu sem fyrr. Félag atvinnurekenda sakar eftirlitsaðila um að vanrækja eftirlit með Póstinum. — Morgunblaðið/Hari
Ríkisendurskoðun brást í eftirliti sínu með Íslandspósti. Þá var stofnunin vanhæf til að gera úttekt á Póstinum í ljósi starfa sinna fyrir fyrirtækið. Þessu er haldið fram í erindi sem Félag atvinnurekenda sendi innviðaráðuneytinu og fleiri aðilum í stjórnkerfinu vegna Póstsins

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Ríkisendurskoðun brást í eftirliti sínu með Íslandspósti. Þá var stofnunin vanhæf til að gera úttekt á Póstinum í ljósi starfa sinna fyrir fyrirtækið.

Þessu er haldið fram í erindi sem Félag atvinnurekenda sendi innviðaráðuneytinu og fleiri aðilum í stjórnkerfinu vegna Póstsins.

Eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. laugardag telur Félag atvinnurekenda að Byggðastofnun hafi vanrækt eftirlitshlutverk sitt með starfsemi Póstsins. En Byggðastofnun tók við þessu eftirlitshlutverki af Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) sem áður hafði eftirlit með starfsemi Póstsins.

Að mati Félags atvinnurekenda hefur Ríkisendurskoðun einnig brugðist hlutverki sínu í þessum málum og um leið opinberað vanhæfni sína til að leggja mat á starfsemi Póstsins.

Alþingi hafi sent skýrslubeiðni á Ríkisendurskoðun þar sem sérstaklega hafi verið óskað eftir að stofnunin myndi draga fram hvort framlög til Íslandspósts vegna veitingar alþjónustu væru reiknuð út á réttan hátt og hvernig gjaldskrárbreytingum hefði verið háttað í tengslum við sama verð um allt land. En samkvæmt lögum skulu allir notendur póstþjónustu á Íslandi eiga rétt á alþjónustu sem uppfyllir gæðakröfur og er á viðráðanlegu verði.

Ekki lagt mat á útreikning

Síðan rifjar Félag atvinnurekenda upp að hinn 14. mars 2024 skilaði Ríkisendurskoðun niðurstöðum frumathugunar til Alþingis.

„Athygli vekur að í skýrslunni er engin tilraun gerð til að leggja mat á hvort PFS og síðar Byggðastofnun hafi tekizt að uppfylla lögbundið hlutverk sitt og ákvæði laga um póstþjónustu. Ekki er heldur dregið fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar hvort framlög til ÍSP vegna veitingu alþjónustu séu rétt reiknuð,“ segir í erindinu.

„Segja má að Ríkisendurskoðun hafi skautað fram hjá öllum meginatriðum sem fram komu í skýrslubeiðni Alþingis. Svo virðist sem niðurstöður frumathugunar Ríkisendurskoðunar séu settar fram í þeim tilgangi að villa um fyrir Alþingi í viðleitni þess til að hafa eftirlit með meðferð almannafjár. FA hefur bent á vanhæfi Ríkisendurskoðunar í þessum efnum, en stofnunin veitti Íslandspósti ráðgjöf við að stilla upp tölum með þeim hætti að sem hæst framlög fengjust úr ríkissjóði. Stofnunin gerði sig með því augljóslega vanhæfa til að gera úttekt á málum tengdum fyrirtækinu og hefði átt að greina Alþingi frá því vanhæfi,“ segir í erindinu.

Hleypur á milljörðum króna

Eins og rakið var í Morgunblaðinu á laugardag telur Félag atvinnurekenda að á grundvelli óljósra reglna Byggðastofnunar hafi Íslandspósti verið „veitt fjárframlög úr ríkissjóði frá árinu 2020 sem telja í milljörðum, þvert á ákvæði laganna“ (um póstþjónustu nr. 98/2019).

Félag atvinnurekenda finnur einnig að samskiptum Byggðastofnunar við Samkeppniseftirlið. Það hafi fengið upplýst af hálfu Samkeppniseftirlitsins að Byggðastofnun hafi lítið sem ekkert leitað til stofnunarinnar um umsögn eða aðstoð vegna samkeppnislegra álitamála.

Vinni gegn takmörkunum

Samkvæmt 3. grein áðurnefndra laga um póstþjónustu sé eitt meginhlutverk Byggðastofnunar „að stuðla að samkeppni á sviði póstþjónustu og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti með því að vinna gegn röskun eða takmörkun samkeppni á póstþjónustumarkaði“. Í sömu grein laganna sé kveðið á um setningu og birtingu áðurnefndra reglna Byggðastofnunar og Samkeppniseftirlitsins um meðferð og úrlausn mála.

„Það er alvarlegur misbrestur á framkvæmd stofnunarinnar á póstlögunum að starfa ekki í samræmi við þessar reglur,“ segir í erindi Félags atvinnurekenda sem er undirritað af Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra félagsins.

Höf.: Baldur Arnarson