Rit- og myndhöfundurinn Linda Ólafsdóttir hefur verið tilnefnd til Þýsku barnabókaverðlaunanna, Deutschen Jugendliteraturpreis, 2025 fyrir bók sína Ég þori! Ég get! Ég vil! Þegar íslenskar konur höfðu svo hátt að allur heimurinn heyrði í þeim. Segir í tilkynningu að á bókamessunni í Frankfurt í október komi svo í ljós hverjir hljóti verðlaunin sem þyki þau virtustu í Þýskalandi. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að Linda fjalli á áhrifaríkan og aðgengilegan hátt um kvenréttindamál. „Hún vekur með bók sinni næmni barna fyrir jafnrétti og félagslegu réttlæti og styrkir réttlætiskennd þeirra.“