Norður
♠ 1083
♥ D4
♦ Á864
♣ 9432
Vestur
♠ ÁG97642
♥ 6
♦ G2
♣ G85
Austur
♠ K5
♥ G872
♦ 1097
♣ ÁK106
Suður
♠ D
♥ ÁK10953
♦ KD53
♣ D7
Suður spilar 4♥.
Vestur opnar á 3♠ í fyrstu hendi og eftir tvö pöss segir suður 4♥ sem enginn skiptir sér af. Útspilið er ♠Á og meiri spaði á kóng austurs.
Breski spilarinn Andrew Robson hefur gefið það heilræði, að ef sá sem hefur sagt hindrunarsögn spilar út eigin lit eigi hann oft einspil í trompi; hann myndi væntanlega spila út einspili í hliðarlit ef hann ætti það.
Í spilinu að ofan eru fleiri vísbendingar um að austur eigi 4-lit í trompi. Þeir sem aðhyllast lögmálið um samhverfu skiptingar gætu bent á að spaðinn virðist skiptast 7-3-2-1 og þá séu líkur á að spil vesturs skiptist með sama hætti. Þá á suður 1-6-4-2-skiptingu og því sé líklegt að einhver litur skiptist eins milli spilaranna, væntanlega hjartað. Því segja líkurnar að sagnhafi eigi að trompa spaðann, spila hjarta á drottningu og svína tíunni næst.