Forseti Heimsókn lýkur 10. apríl.
Forseti Heimsókn lýkur 10. apríl. — Ljósmynd/Skrifstofa forseta Íslands
For­seti Íslands Halla Tóm­asdóttir og eig­inmaður henn­ar Björn Skúla­son hefja í dag þriggja daga rík­is­heim­sókn sína til Nor­egs þar sem farið verður bæði til Ósló­ar og Þránd­heims. Segir frá þessu í tilkynningu frá skrifstofu forseta

For­seti Íslands Halla Tóm­asdóttir og eig­inmaður henn­ar Björn Skúla­son hefja í dag þriggja daga rík­is­heim­sókn sína til Nor­egs þar sem farið verður bæði til Ósló­ar og Þránd­heims. Segir frá þessu í tilkynningu frá skrifstofu forseta.

Seg­ir þar einnig að mark­mið heim­sókn­ar­inn­ar sé að styrkja enn frek­ar sögu­leg tengsl Íslands og Nor­egs og vinna að sam­eigin­­legum hags­mun­um þjóðanna, meðal ann­ars á sviði varn­ar­mála, menn­ing­ar og bættr­ar geðheilsu. Verða gest­gjaf­ar for­seta­hjón­anna þau Har­ald­ur V. kon­ung­ur og Sonja drottn­ing ásamt Há­koni krón­prins og Mette-Ma­rit krón­prins­essu. Þar að auki tek­ur elsta dótt­ir þeirra, Ingrid Al­ex­andra prins­essa, þátt í sinni fyrstu rík­is­heim­sókn og verða því þrjár kyn­slóðir norsku kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar viðstadd­ar mót­töku­at­höfn Höllu og Björns við Ósló­ar­höll.

Rík­is­heim­sókn­inni lýk­ur í Þránd­heimi síðdeg­is 10. apríl og koma for­seta­hjón­in heim á fimmtu­dags­kvöld.