Barnamenningarhátíðin í Reykjavík hefst í dag og stendur fram á pálmasunnudag, 13. apríl. Sams konar hátíð hófst á Akureyri 1. apríl sl. og stendur til 27. apríl.
Börnum býðst að fara á fjölbreytta viðburði og sýningar, gjaldfrjálst. Lag hátíðarinnar í Reykjavík, Hlaupasting, verður frumflutt við setningarathöfn í Hörpu í dag, en það er flutt af hljómsveitinni Inspector Spacetime. Meðlimir sveitarinnar sömdu lagið en textinn er samstarfsverkefni þeirra og barnanna í fjórðu bekkjum borgarinnar. Nemendur fengu það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felst í orðunum út að leika. Liðsmenn hljómsveitarinnar eru Egill Gauti Sigurjónsson, Elías Geir Óskarsson og Vaka Agnarsdóttir.
Af fleiri viðburðum ná nefna listsýninguna Út að leika í garðskálanum í Grasagarði Reykjavíkur. Listaverkin eru eftir börn í leikskólunum Austurborg, Bríetartúni, Hallgerðargötu, Hofi, Vinagerði, Laugasól, Múlaborg, Jörfa og Kvistaborg.
Á Borgarbókasafninu í Árbæ gefst börnunum og fylgdarfólki kostur á að hitta Tufta, þriggja metra háan tröllkarl. Á sama tíma mun Brian Pilkington teikna hin ýmsu tröll og kynjaverur eftir óskum gesta. Fjölmarir aðrir viðburðir verða í gangi í borginni og hægt að kynna sér þá á vefnum barnamenningarhatid.is.
VÆB-bræður mæta í Hof
Barnamenningarhátíðin á Akureyri var sett í Hofi 1. apríl með mikilli söngdagskrá. Þar létu nemendur tónlistarskóla bæjarins ljós sitt skína í samstarfi við elstu börn leikskólanna í verkefni er nefnist Söngvavor. Hápunktur í Hofi er svo í dag er VÆB-bræður verða með tónleika kl. 18 en þeir eru sem kunnugt er framlag Íslands í Eurovision í ár.