Efnt verður til málþings á vegum Prjónaveturs á HönnunarMars í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í dag, 8. apríl, klukkan 15.30 þar sem ýmsir aðilar með reynslu og þekkingu af prjónahönnun og framleiðslu koma saman og fjalla um kosti þess og galla að…

Efnt verður til málþings á vegum Prjónaveturs á HönnunarMars í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í dag, 8. apríl, klukkan 15.30 þar sem ýmsir aðilar með reynslu og þekkingu af prjónahönnun og framleiðslu koma saman og fjalla um kosti þess og galla að framleiða prjónavörur hérlendis, að því er segir í tilkynningu. Á sýningu Prjónaveturs eru til sýnis prjónavörur sem hannaðar og framleiddar hafa verið á Íslandi en sýningin verður opin 12. og 13. apríl, milli kl. 13 og 17.