Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
„Eftir stórslys vinstrimeirihlutans í borginni um að leyfa risavaxið stálgrindarhús fyrir framan nefið á íbúum við Árskóga 7 hefur orðið mikil vakning um skipulagsmál og íbúar eru uggandi um hvað verði næst,“ segir Helgi Áss Grétarsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hann vísar til kortasjár Reykjavíkurborgar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni þar sem fram kemur að til standi að byggja 1.600-1.700 íbúðir á þéttingarreitum í Breiðholti.
Efra-Breiðholt
Á kortasjánni kemur fram að við Suðurfell, nálægt framkvæmdasvæði gatnamótanna við Arnarnesveg, er áformað að byggja 125 íbúðir fyrir ofan Elliðaárdalinn. Við Jórufell og Iðufell þar sem Fjölskylduhjálpin er stendur til að byggja 100 íbúðir. Við Eddufell og Drafnarfell á að byggja 31 íbúð þar sem áður var verslun og þjónusta. Á útivistarsvæði við Völvufell og Yrsufell á að byggja 57 íbúðir. Við Suðurhóla stendur til að byggja 100 íbúðir á fótboltavelli fyrir neðan Krummahóla og í Krummahólum verða byggðar 12 íbúðir á bílastæðum. Við Suðurfell, á lóð Orkunnar, stendur líka til að byggja en ekki liggur enn fyrir hversu margar íbúðir.
Neðra-Breiðholt
Í Neðra-Breiðholti er gert ráð fyrir nokkrum þéttingarreitum og eru lóðirnar í Mjóddinni þar umfangsmestar en þar er gert ráð fyrir samtals 800 íbúðum í Norður-Mjódd og á lóð Sambíóanna en sú lóð var nýlega seld til uppbyggingaraðila. Þar sem Staldrið var áður er gert ráð fyrir 50 íbúðum. Við norðanverðan Stekkjarbakka við Elliðaárdalinn er búið að úthluta Félagsbústöðum lóð fyrir sjö íbúðir. Við Arnarbakka 2-10, þar sem áður var verslun og þjónusta, er verið að rífa eldri byggingar sem víkja fyrir 100 íbúðum.
Seljahverfi
Fimmtíu íbúðir verða byggðar á N1-lóðinni við Skógarsel 10 í Seljahverfi og á útivistarsvæðinu við tjörnina í miðju hverfinu verða byggðar 100 íbúðir.
Helgi Áss segist vilja upplýsa íbúa um hversu mikið standi til að byggja í Breiðholtinu, hvar þessir fyrirhuguðu þéttingarreitir séu og því sé umræða í borgarstjórn mikilvæg á þessum tímapunkti til að veita upplýsingar um hvert borgaryfirvöld stefni með þetta hverfi.
Þarf að upplýsa borgarbúa
Eins og fram hefur komið eru þessar upplýsingar sóttar á sérstakan uppbyggingarvef borgarinnar þar sem þéttingarreitir eru tilgreindir, reykjavik.is/husnaedi/uppbygging.
„Um er að ræða lóðir sem eru í skoðun, lóðir sem búið er að deiliskipuleggja og lóðir sem uppbygging er hafin á. Þegar þetta er tekið saman kemur í ljós að til stendur að byggja 16-17 hundruð íbúðir á þéttingarreitum víðs vegar í hverfinu. Sem dæmi má nefna að byggt er á útivistarsvæðum, fótboltavöllum og bílastæðum, auk mikillar þéttingar á gömlum verslunar- og þjónustulóðum,“ segir Helgi Áss Grétarsson.
Á fundi borgarstjórnar í dag verður umræða um málið að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Mest verður byggt í Mjóddinni
Morgunblaðið greindi frá fyrirhugaðri uppbyggingu í Mjóddinni í ítarlegri umfjöllun Baldurs Arnarsonar í byrjun febrúar sl. Þar kom fram að til stæði að byggja allt að 450 íbúðir í Norður-Mjódd. Nú er gert ráð fyrir 800 íbúðum í Mjóddinni, sem er um það bil helmingurinn af áformaðri þéttingu í Breiðholti.
Þétting í Breiðholti
100 íbúðir við tjörnina í Seljahverfi
50 íbúðir á fótboltavelli við Suðurhóla
800 íbúðir í Mjódd
7 íbúðir fyrir Félagsbústaði við Elliðaárdal
125 íbúðir við Arnarbakka