Stríð Trump hefur þrýst á Rússa og Úkraínumenn að semja um frið. Úkraínumenn hafa verið opnir fyrir því en Rússar hafa dregið lappirnar.
Stríð Trump hefur þrýst á Rússa og Úkraínumenn að semja um frið. Úkraínumenn hafa verið opnir fyrir því en Rússar hafa dregið lappirnar. — AFP/Brendan Smialowski
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkin myndu hætta viðleitni sinni í þágu vopnahlés á milli Úkraínu og Rússlands nema einhver framvinda yrði í viðræðunum á næstunni. „Ef af einhverjum ástæðum annar aðilinn gerir þetta mjög…

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkin myndu hætta viðleitni sinni í þágu vopnahlés á milli Úkraínu og Rússlands nema einhver framvinda yrði í viðræðunum á næstunni.

„Ef af einhverjum ástæðum annar aðilinn gerir þetta mjög erfitt, þá ætlum við bara að segja: „Þið eruð heimskir, þið eruð fífl, þið eruð hræðilegt fólk.“ Og við ætlum bara að sleppa þessu, en vonandi þurfum við ekki að gera það,“ sagði Trump í Hvíta húsinu í gær.

Spurður út í hversu mikinn tíma Bandaríkjamenn gæfu viðræðunum sagði Trump: „Enginn ákveðinn dagafjöldi, en fljótlega, við viljum klára þetta.“

Trump neitaði að svara hvort Bandaríkin myndu algjörlega segja sig frá viðræðunum eða styðja Úkraínumenn ef viðræður slitnuðu. Spurður hvað þyrfti að gerast til þess að Bandaríkin héldu áfram þátttöku í viðræðum sagðist Trump vilja sjá „vilja til þess að ljúka þessu“ frá báðum ríkjum. Forsetinn sagðist gera ráð fyrir að fá svar við þeirri spurningu bráðum.

Fyrr um daginn hafði Marco Rubio utanríkisráðherra einnig varað við því að Bandaríkin myndu segja skilið við þátttöku í viðræðum ef enginn árangur næðist á næstu vikum.

„Við komum hingað í gær [fimmtudag] til að byrja að ræða nánar um hvað gæti þurft til að binda enda á stríðið, til að reyna að komast að því mjög fljótlega – og ég er að tala um daga, ekki vikur – hvort þetta sé stríð sem hægt er að binda enda á. Ef sú er raunin erum við reiðubúin að gera allt sem í okkar valdi stendur til að greiða fyrir því og tryggja að það gerist á varanlegan og réttlátan hátt,“ sagði Rubio í kjölfar fundar með Evrópuleiðtogum í París sem fór fram á fimmtudaginn.

„Ef það er ekki mögulegt – ef við erum svo ósammála að ekkert gerist – held ég að forsetinn sé líklega kominn á þann stað að hann muni segja: „Jæja, við látum þetta gott heita“. Við gerum það sem við getum á hliðarlínunni. Við verðum tilbúin að hjálpa um leið og þið eruð tilbúin til friðar. En við ætlum ekki að halda þessari viðleitni áfram vikum og mánuðum saman,“ sagði Rubio. hng@mbl.is