Mohamed Hamdan Daglo leiðtogi RSF
Mohamed Hamdan Daglo leiðtogi RSF
Að minnsta kosti 57 almennir borgarar létust í átökum stjórnarhersins og RSF-uppreisnarhersins í Darfur-héraði í Súdan á fimmtudag. Íbúar í borginni El-Fasher, sem eiga ekki kost á að flýja, óttast blóðbað í borginni nú þegar átökin hafa færst nær

Að minnsta kosti 57 almennir borgarar létust í átökum stjórnarhersins og RSF-uppreisnarhersins í Darfur-héraði í Súdan á fimmtudag. Íbúar í borginni El-Fasher, sem eiga ekki kost á að flýja, óttast blóðbað í borginni nú þegar átökin hafa færst nær.

RSF-uppreisnarherinn er sagður hafa grandað lífi yfir 400 manns í árás á El-Fasher á miðvikudag og flóttamannabúðum þar í grennd.

Uppreisnarherinn hefur setið um borgina, sem er höfuðborg Darfur-héraðs, í um ár. El-Fasher er eina borgin í héraðinu sem enn er á valdi stjórnarhersins, en stjórnarherinn náði höfuðborg landsins, Kartúm, aftur á sitt vald. Styrjöld hefur geisað í Súdan frá því að RSF gerði valdaránstilraun í landinu í apríl 2023.