Metþátttaka var í Puffin Run í Vestmannaeyjum á laugardaginn þegar 1.334 keppendur hlupu 20 kílómetra í sól og blíðu. Að því er fram kemur í tilkynningu markaði þetta fjölmennasta utanvegahlaup sem farið hefur fram á Íslandi.
Jákvæðni og gleði þátttakenda var greinileg er þeir tókust á við erfiða en fallega leiðina og eftir hlaupið söfnuðust þeir allir saman á Vigtartorgi og deildu reynslusögum.
Þetta er áttunda árið sem hlaupið fer fram og lýsa aðstandendur þess gríðarlegu þakklæti til allra þeirra sem tóku þátt í hlaupinu og þeirra sem störfuðu við það.
Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í kvennaflokki fjórða árið í röð á tímanum 1:27:52. Það er sami tími og hún hljóp á í fyrra. Í öðru sæti varð Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir á 1:33:28 og í þriðja sæti Steinunn Lilja Pétursdóttir á 1:33:36.
Hlynur Andrésson sigraði í karlaflokki á 1:14:56 og setti brautarmet. Hlynur, sem er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, var að keppa í hlaupinu í fyrsta sinn en hann er einn besti götuhlaupari landsins.
Tveir fyrrverandi sigurvegarar í hlaupinu voru í næstu tveimur sætum: Þorsteinn Roy Jóhannsson, sem sigraði árið 2021, kom annar í mark á 1:15:56 og sigurvegari síðustu þriggja ára, Arnar Pétursson, var þriðji á 1:16:46.