Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Spretthópur á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um matarmál í skólum borgarinnar hefur lokið störfum og verða tillögur hópsins kynntar innan tíðar. Þetta segir Ellen Alma Tryggvadóttir, doktor í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, en hún situr í hópnum.
Mikil umræða hefur verið um matvælaöryggi í skólum eftir að E.coli-hópsýking kom upp á leikskólanum Mánagarði á síðasta ári.
Ellen segir að spretthópurinn hafi kynnt sér stöðuna í matarmálum í skólum en hún er afar misjöfn þar sem sums staðar er matur aðkeyptur en annars staðar eldaður á staðnum. Hlutverk hópsins er að meta þörfina á úrbótum og hvernig best sé að bregðast við.
Hún segir jafnframt að fræðsla fyrir starfsfólk hafi verið aukin síðan hópsýkingin kom upp. Auk reglulegrar fræðslu um matvælaöryggi, sem lengi hafi verið við lýði, hafi verið bætt við vefnámskeiði í samstarfi við MK. Það var síðast haldið í janúar. Þá er núna boðið upp á fræðslunámskeið í samstarfi við Akademias á Torginu, fræðsluvef Reykjavíkurborgar.
„Ein af tillögum spretthópsins er að þessi fræðsla verði líka aðgengileg fyrir starfsfólk einkarekinna leikskóla eins og Mánagarðs,“ segir Ellen.