Linda Ingólfsdóttir fæddist 4. september 1972. Hún lést 19. apríl 2025.

Útför Lindu fór fram 9. maí 2025.

Okkur finnst enn svo óraunverulegt að þurfa kveðja elsku Lindu okkar sem var einstök systir, mágkona og frænka. Hún var sannkallaður gleðigjafi í okkar lífi með sitt bjarta bros, sína góðu nærveru og sitt hlýja faðmlag. Linda var falleg að innan sem utan. Hún fylgdist vel með sínum nánustu og það var ómetanlegt að geta leitað til hennar með allt milli himins og jarðar þar sem hún var ávallt hvetjandi, ráðagóð og fylgdi hlutunum vel eftir ef eitthvað bjátaði á. Hún var glaðvær og með góðan húmor og átti það oft til að hringja t.d. á afmælum, syngja afmælissönginn, skellihlæja og gera góðan dag enn betri. Þegar Inga flutti til Reykjavíkur í nám var Linda alltaf til staðar að passa upp á litlu frænku sína og bauð henni að búa hjá sér þegar þannig stóð á. Þegar Írisi vantaði vinnu á unglingsárunum fór Linda frænka að sjálfsögðu í málið og reddaði því. Hún var góður kokkur og snilldarbakari. Það var gaman fyrir okkur frænkurnar að fá að passa litlu frændurna fyrir Lindu og Garðar. Þá var auðvitað alltaf til nóg af gotteríi og glaðningum sem þau laumuðu að okkur.

Linda var fljót að eignast vini og kunningja hvert sem hún fór og gaf sér alltaf góðan tíma til þess að stoppa og spjalla. Hún var mikill fagurkeri, nostraði við heimilið, var algjör skvísa, fallega klædd, fallega máluð með vel blásið hárið og vel ilmandi. Við mæðgur nutum góðs af þar sem hún var okkar helsti ráðgjafi í nýjustu tísku, alltaf með puttann á púlsinum með sín fallegu föt sem hún kom áfram til okkar ef henni sýndist svo. Linda var ákveðin og fylgdi hlutunum vel eftir og náði langt í því sem hún tók sér fyrir hendur. Þegar veikindin bönkuðu upp á barðist Linda eins og ljón, sýndi mikla þrautseigju og þol með sterka baklandið sitt sér við hlið þar sem Garðar og strákarnir pössuðu vel upp á sína konu.

Við yljum okkur við góðar og fallegar minningar um Lindu okkar, góða vinkonu og fallega fyrirmynd í lífinu. Við erum sannfærð um að hún haldi áfram að vaka yfir okkur, komin til foreldra sinna að passa upp á sitt fólk, enda búin að fullvissa okkur um það áður en hún kvaddi. Elsku Garðar Már, Ingi Þór, Ingólfur Andri, Darri Már og Arís Linda litla ömmugull, megi guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum.

Hulda, Óskar, Inga, Íris, Eva og fjölskyldur.