Arnar Gestsson fæddist 26. janúar 1966. Hann lést 10. apríl 2025.
Jarðarför hans fór fram 25. apríl 2025.
Það er erfitt að finna orð til að lýsa sorginni sem fylgir því að kveðja þig elsku bróðir. Það situr eftir tómarúm sem ég á erfitt með að horfast í augu við.
Alla mína tíð hefur þú verið hluti af lífi mínu og alltaf sá maður sem ég leit mest upp til, bæði fyrir það hver þú varst og hvernig þú lifðir. Ég vissi alltaf að ég hafði fengið einstaka gjöf að eiga þig sem bróður. Þú varst ekki bara leiðarljós og fyrirmynd, heldur líka vinur sem ég gat alltaf treyst á.
Það sem gerði þig svo einstakan var gleðin og jákvæðnin sem þú barst með þér og var svo smitandi. Þú varst alltaf brosandi, alltaf hlýr og nærgætinn og góður gagnvart öðrum. Í návist þinni fann maður sig velkominn, séðan og elskaðan. Þú þurftir aldrei að reyna, það bara fylgdi þér.
Samtölin okkar voru mér ómetanleg. Það skipti engu máli hversu hversdagslegt umræðuefnið var, þú gast alltaf fundið eitthvað áhugavert sem leiddi af sér fjörugar og skemmtilegar samræður. Þú gast alltaf talað um hvað sem var með innsæi og einlægni.
Þessar samræður gáfu mér svo mikið, þær lyftu mér upp, gáfu mér nýtt sjónarhorn og skildu mig alltaf eftir í djúpum hugsunum löngu eftir að við kvöddumst.
Þegar kemur að kostum sem alheimurinn deilir á manneskjur, þá dastu í lukkupottinn. Og við, sem fengum að ganga hluta leiðarinnar með þér, fengum að njóta þess, og fyrir það er ég að eilífu þakklát.
Ég sakna þín með hverju andartaki. Hvíldu í friði, elsku bróðir.
Þín systir,
Íris Björg.