Gunnlaugur Claessen fæddist í Reykjavík 18. ágúst 1946. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni 1. maí 2025.
Foreldrar hans voru Haukur Claessen, varaflugmálastjóri í Reykjavík, og Guðrún Claessen, húsfreyja og símavörður. Þau eignuðust þrjú börn: Sigríði Ingibjörgu, f. 1. apríl 1943, d. 23. maí 2005, Gunnlaug og Helgu Kristínu, f. 5. september 1955.
Gunnlaugur kvæntist Helgu Hjálmtýsdóttur árið 1972. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Þórdís, f. 1974, grafískur hönnuður, og Haukur, f. 1977, stjórnmálafræðingur og kennari. Eiginkona Hauks er Jórunn Harpa Ragnarsdóttir læknir. Synir þeirra eru Jökull Fannar og Óðinn Breki.
Árið 1985 gekk Gunnlaugur í hjónaband með Guðrúnu Sveinbjörnsdóttur, f. 22. október 1955, sjúkraliða. Foreldrar Guðrúnar voru Sveinbjörn Hjálmarsson, forstjóri í Vestmannaeyjum, og Erna Margrét Jóhannesdóttir skrifstofumaður. Sonur Guðrúnar og Gunnlaugs er Sveinbjörn, f. 1986, lögfræðingur. Eiginkona hans er Sigríður Hulda Árnadóttir hjúkrunarfræðingur. Dætur þeirra eru Sara Rakel og Sóley Erla. Stjúpdóttir Gunnlaugs er Erna Margrét Þórðardóttir, f. 1980, lögfræðingur. Maki hennar er Leifur Steinn Árnason viðskiptafræðingur. Börn þeirra eru Arnór Steinn, Berglind Björt, Jakob Kári og Embla Katrín.
Gunnlaugur ólst upp í Langholtshverfinu í Reykjavík og gekk í Langholtsskóla og síðar í Vogaskóla. Hann útskrifaðist sem stúdent frá MR árið 1966 og tók lögfræðipróf frá lagadeild HÍ árið 1972. Hann stundaði framhaldsnám í kröfurétti við Óslóarháskóla veturinn 1972-1973, varð héraðsdómslögmaður 1974 og hæstaréttarlögmaður 1980. Gunnlaugur starfaði sem fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu árið 1972, var fulltrúi í fjármálaráðuneytinu frá 1973-1975 og deildarstjóri þar frá 1975-1984. Hann var skipaður ríkislögmaður árið 1984 fyrstur manna og gegndi því embætti í 10 ár uns hann var skipaður dómari við Hæstarétt Íslands árið 1994. Hann gegndi dómarastarfinu við Hæstarétt til hausts 2013. Gunnlaugur var varaforseti Hæstaréttar 2004-2005 og forseti réttarins 2006-2007. Gunnlaugur var formaður Orators, félags laganema við HÍ, veturinn 1970-1971. Hann sat í ýmsum öðrum stjórnum, m.a. Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Slippstöðvarinnar á Akureyri. Hann var formaður Lögfræðingafélags Íslands, átti sæti í réttarfarsnefnd og var formaður nefndar um dómarastörf. Gunnlaugur var stundakennari í verslunarrétti við Verzlunarskóla Íslands 1977-1984 og prófdómari við lagadeild Háskóla Íslands frá 1975. Hann var formaður yfirmatsnefndar skv. lögum um lax- og silungsveiði frá árinu 1995. Hann var formaður stjórnar sjálfseignarstofnunarinnar Minja frá 2000-2022. Gunnlaugur var virkur félagi í Frímúrarareglunni á Íslandi.
Gunnlaugur var skógræktarmaður og ræktaði skóg ásamt fjölskyldu sinni á jörð hennar í Grímsnesi. Skógræktin átti hug hans allan og undi hann hag sínum vel í sveitinni.
Útför Gunnlaugs fer fram frá Langholtskirkju í dag,
15. maí 2025, klukkan 13.
Ég hef lagt mig fram við að temja mér þá jákvæðu mannkosti sem pabbi bjó yfir. Trygglyndi, heiðarleiki og dugnaður einkenndu hann alla tíð og vandaðri maður því vandfundinn.
Hvíl í friði elsku pabbi.
Þinn sonur,
Haukur.