Jóhann Jónsson fæddist 27. júlí 1934. Hann lést 16. maí 2025.
Útför hans fór fram 26. maí 2025.
Jói, eins og hann var alltaf kallaður, kom með pabba sínum og eldri bróður að Nesjum í Grafningi frá Tyrðilmýri á Snæfjallaströnd níu eða tíu ára. Höfðu þeir bræður þá misst mömmu sína. Jói lifði mörg áföll, en líka góða tíma.
Hann ólst upp á Nesjum með pabba sínum og eldri bróður Ragnari á Brúsastöðum. Hann nam búfræði á Hvanneyri og eftir nám þar fékk hann Stíflisdal í Þingvallasveit til ábúðar. Bjó hann þar í nokkur ár. Brúsastaðir voru lausir til ábúðar 1962 og hófu þeir bræður Ragnar og Jói búskap þar saman. Byggðu stór og mikil fjárhús og hlöðu, og ráku þar myndarlegt fjárbú.
Jói kynntist svo konu sinni Rósu Jónsdóttur, frá Steingrímsstöð við Úlfljótsvatn, og hófu þau búskap í Mjóanesi 1978. Áttu þar saman fimm börn. Rósa átti tvo drengi fyrir sem Jói gekk í föðurstað. Sjö börn, stórt heimili.
Þau misstu elsta drenginn Jón Torfa um tíu ára aldur, úr ólæknandi sjúkdómi. Áfall á áfall ofan. Rósu sína misst Jói fyrir fjórum árum. Þau áttu mjög góð ár í Mjóanesi saman.
Kom ég þar í 30 ár að keyra börn þeirra til skóla og heim aftur. Ég hef þekkt Jóa alla mína tíð.
Jói hefði orðið 91 árs núna í júlí. Nútíð og þátíð var allt klárt í kollinum á honum, allt til enda. Ég þakka þér, vinur og nágranni, öll þessi ár.
Krakkar! Minningar lifa.
Sveinbjörn F. Einarsson, Heiðarbæ II.