Friðrik Jón Aðalsteinsson fæddist 4. janúar 1961. Hann lést 14. maí 2025. Útför Fidda fór fram 28. maí 2025.
Elsku Fiddi minn, vinur minn góði.
Það er erfitt að ímynda sér árið án okkar venjubundnu funda á Jómfrúnni. Þar hittumst við oft – til að taka stöðuna, hrista upp í tilverunni og ræða um lífið, fortíð, nútíð, framtíð. Þú mættir alltaf á undan mér – vel tilhafður, í stílhreinum fötum, með áberandi og fágaðan ilm og bros sem tók manni opnum örmum. Alltaf með hlýtt knús til að byrja samtalið. Þú varst svo einstaklega hlýr.
Fiddi var af þeirri gerð sem maður kallar gæðablóð. Trúr vinur – einlægur, heiðarlegur og með húmorinn á réttum stað. Hann hafði einstakt lag á að sjá fegurðina í fólki og hlutum og lét það alltaf í ljós. Hrósin komu frá hjartanu og hann sparaði þau ekki. Í honum bjó einlægur fagurkeri – ekki bara í útliti, heldur í hugsun, orðum og nálgun við heiminn.
Ég sakna hans. Sakna hlátursins, spjallsins, klókindanna og nærverunnar. Það var sérstök ró yfir honum – og alvara líka, sem gaf samtölum okkar vægi.
Heimurinn er fátækari án Fidda – en minningarnar lifa og hlýjan sem hann skildi eftir sig fylgir mér áfram.
Blessuð sé minning vinar míns.
Lára
Stefánsdóttir.