Ómar Runólfsson fæddist 23. desember 1947. Hann lést 9. maí 2025.

Útför Ómars fór fram 22. maí 2025.

Æskuvinur minn, öðlingurinn og fóstbróðir Ómar Runólfsson, var jarðsunginn 22. maí að viðstöddu fjölmenni, sem kom ekki á óvart því Ómar var hvers manns hugljúfi, náttúrubarn, sem menn og dýr löðuðust að.

Ský dró fyrir sólu og veðurguðirnir skörtuðu hlýjum rigningarúða sem blandaðist tárum, þegar kirkjugestir gengu út eftir einstaklega persónulega útför þar sem Auður, ekkja Ómars, flutti ljóð í þýðingu sinni og tónlistarfólk, sem hann hafði tengst og sungið með, flutti tónlist í hans anda.

Guð og allar góðar vættir blessi fallega minningu dáðadrengs, sem ég trúi að eigi sér framhaldslíf með öllu því góða og fallega sem hann tengdist og hefur kvatt þessa jarðvist. Ómar ræktaði garðinn sinn, í allri merkingu þess orðs, af alúð og allt varð fallegt í höndunum á honum, jafnvel ógeðfelld skordýr sem hann ljósmyndaði af listrænu innsæi og þekkingu. Hann fangaði fegurð í ljósmyndum sínum, svo eftir því var tekið.

Ég veit að missir ástvinanna er mikill og votta Auði, börnum Ómars, barnabörnum, fjölskyldu og vinum einlæga samúð.

Þuríður Sigurðardóttir (Þura).