Sigurður Helgason fæddist 1. október 1954. Hann lést 30. apríl 2025.
Útför hans fór fram í kyrrþey 16. maí 2025.
Með fátæklegum orðum langar okkur til að kveðja góðan vin okkar, Sigurð Helgason eða Sigga Helga eins og hann var oftast kallaður. Það mun hafa verið árið 1988, eftir að Siggi hóf störf hjá Umferðarráði, að leiðir okkar lágu saman en frá þeim tíma hófst vinátta sem stóð allar götur síðan eða meðan hann lifði.
Við sem þessar línur ritum vorum í stjórn Ökukennarafélags Íslands en félagið hefur ætíð haft mikil afskipti af umferðaröryggismálum og átti því í talsverðum samskiptum við Umferðarráð. Þau samskipti urðu enn nánari þegar Umferðarráð, síðar Umferðarstofa, flutti starfsemi sína í Borgartún 33 og tók við umsjón með ökunámi og framkvæmd ökuprófa. Í framhaldinu varð samstarf þessara aðila enn nánara og samskiptin meiri. Siggi hafði góða nærveru eins og sagt er, ávallt glaðlegur og hress í framkomu tilbúinn að hlusta á vandamál og leggja gott til lausnar þeirra. Hann hafði brennandi áhuga á umferðaröryggismálum og lagði sig allan fram við að afla sér sem mestrar þekkingar á því sviði.
Á stund sem þessari koma fram margar minningar um skemmtilega atburði sem tengjast fræðslufundum eða ráðstefnum um umferðarmál, bæði hér heima og erlendis. Við slík tækifæri var Siggi ávallt hrókur alls fagnaðar og sem slíkur naut hann sín best. Í okkar huga er ekki nokkur vafi á að það jákvæða andrúmsloft sem ríkti við starfsemi Umferðarráðs í Borgartúninu á þessum árum megi að stórum hluta rekja til góðrar og elskulegrar framkomu Sigga Helga. Hann á því miklar þakkir skildar fyrir sinn þátt í allri þeirri starfsemi. Siggi var mikill fjölskyldumaður sem ávallt var með hugann við velferð Önnu konu sinnar og barna þeirra. Hann vildi veg stórfjölskyldunnar allrar sem mestan en hún og hagur hennar var honum ávallt ofarlega í huga.
Í hjáverkum fékkst Siggi við bókaskrif og þýðingar og er nokkur fjöldi bóka sem eftir hann liggur. Eitt af síðari verkum á því sviði sem hann tók að sér var að þýða og staðfæra kennslubók í bifhjólaakstri fyrir Ökukennarafélag Íslands og er sú bók enn í notkun.
Með söknuði og virðingu kveðjum við þennan góða vin okkar sem horfinn er á braut fyrir aldur fram. Við viljum senda eftirlifandi eiginkonu hans, börnum þeirra og öðrum skyldmennum okkar innilegustu samúðarkveðju.
Arnaldur Árnason,
Guðbrandur Bogason.