Sigurbjarni Guðnason fæddist 20. ágúst 1935. Hann lést 15. maí 2025.
Útförin fór fram 26. maí 2025.
Kær vinur fallinn frá.
Kynni okkar Sigurbjarna hófust fyrir u.þ.b. 15 árum þegar þau Hulda komu í heilsufarsmælingu hjá Hjartaheillum. Ég var það heppinn að þau komu á mælingarstöðina hjá mér. Að mælingu lokinni ákváðum við að þau kæmu í eftirfylgni hjá mér og gerðu þau það reglulega ásamt því að við fengum okkur alltaf kaffi í lokin.
Um tíma lágu leiðir okkar ekki saman en einn daginn birtist Sigurbjarni á skrifstofunni hjá mér og tjáði mér að Hulda væri látin og skynjaði ég sorgina sem hann var að glíma við og þá hugsun að ég yrði að reyna eftir fremsta megni að vera í sambandi við hann. Fyrst voru þetta símtöl eða messenger-sendingar þar sem við gátum sent myndir og þ.h. hluti, en Sigurbjarni fylgdist mjög vel með laser- og myndvinnslu minni og var ég mjög stoltur þegar hann gaf mér álit á verkum mínum, hvað þá þegar hann valdi tvær myndir sem hann hafði sér á hægri hönd í hillusamstæðunni vel sýnilegar.
Fram að árinu 2021 heimsótti ég Sigurbjarna einu til tvisvar í viku heim til hans og drukkum við saman besta kaffið með rjóma. Þar sem ég var hættur að vinna og ekki búinn að finna mér áhugamál urðu heimsóknirnar fleiri og fór síðan í að mánudagar urðu okkar dagar. Kaffi drukkið, rætt um allt á milli himins og jarðar þó aðallega um tónlist, en tónlistasmekkur okkar lá algjörlega saman, ásamt myndatökum og myndavélum, en Sigurbjarni átti fjölda myndavéla af ýmsum gerðum, uppstillt eins og hann vildi hafa þær í hillunum. Sigurbjarni spilaði á fjölda hljóðfæra en trommurnar voru hans aðalhljóðfæri, spilaði hann í nokkrum hljómsveitum og söng í kórum.
Þegar heilsunni hrakaði og getu hans til að vera heima fékk hann inni á Landakoti. Áfram hittumst við á mánudögum, auk þess þar sem ég er til meðferðar þar þá var ávallt litið inn til veikburða vinar míns svo ég sá hvernig dró af heilsu hans. Síðasta mánudaginn, rétt fyrir andlát Sigurbjarna, héldumst við í hendur, augu okkar mættust langa stund, vissum við að þetta yrði síðasti kaffibollinn sem við drykkjum saman í lifanda lífi.
Sigurbjarni Guðnason andaðist 15. maí 2025. Blessuð sé minningin um hjartahreinan vin. Far þú í friði kæri vinur og hafðu hjartans þakkir fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman.
Þinn vinur,
Ásgeir Þór Árnason.