Agnes Johansen fæddist í Reykjavík 27. september 1958. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 18. maí 2025.
Foreldrar hennar eru Rolf Johansen, f. 1933, d. 2007, og Kristín Ásgeirsdóttir, f. 1940. Systkini Agnesar eru Johan Thulin, f. 1959, Svava Þorgerður, f. 1964, Berglind, f. 1966, Ásgeir, f. 1971, og Kristín, f. 1971.
Dætur Agnesar, sem hún eignaðist með fyrrverandi sambýlismanni sínum, Friðjóni Einarssyni, f. 1956, eru: 1) Kristín Una, f. 1981. Maður hennar er Kristján Ketill Stefánsson, f. 1979. Börn þeirra eru: Agnes Katla, f. 2011, Bergþóra, f. 2017, og Móeiður, f. 2021. 2) Tanja Marín, f. 1984. Maður hennar er Dymitry Szypura, f. 1987. Barn þeirra er: Dýri, f. 2020.
Agnes starfaði lengst af við sjónvarpsþátta- og kvikmyndagerð.
Útför Agnesar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 4. júní 2025, klukkan 13.
Elsku Addý mín, það er svo sárt að kveðja þig úr þessu lífi. Þú hefðir átt að eiga fleiri ár og á betri stað en sl. ár þar sem veikindin þín, lungnateppan og erfiður háþrýstingur við lungun yfirtóku líf þitt. Að vera með súrefniskút fastan við þig allan sólahringinn var alvarleg staðan þín.
Minningarnar streyma fram í huga mínum frá okkar æskuárum. Þú, sex árum eldri en ég, elst okkar sex systkina, lagðir línuna oft fyrir okkur hin. Þú fórst á heimavistaskóla til Englands fyrst tíu ára og við hin fylgdum á eftir á svipuðum aldri. Byrjaðir mjög ung að vinna, sem og við hin gerðum. Þú ákvaðst að fara í Verslunarskólann og við hin fylgdum öll eftir. Þú hafðir róttækar skoðanir mjög ung á ýmsum málum og fylgdir ávallt þínu innsæi. Þú hafðir mjög mikil áhrif á mig í uppvextinum. Í minningunni var heimilið okkar fullt af vinum þínum og Túlla bróður okkar sem er ári yngri en þú en þið höfðuð sér íbúð í kjallaranum. Ég reyndi oft að stelast niður og sjá hvað var að gerast í partíunum, enda heyrðist oft upp mikill hlátur og mikið fjör en ég var iðulega send upp aftur, enda bara um tíu ára og fulláhugasöm að fylgjast með hvað var að gerast hjá 16-17 ára spennandi fólki. Þú varst ung og lífsglöð og allt svo spennandi sem þú varst að gera - við Linda systir vorum táningar þegar við heimsóttum þig í tíu daga ferð til London þegar þú varst í dansnámi. Ég ferðaðist líka 13 ára með vinkonum þínum og heimsótti þig þegar þú bjóst í Aix en Provence í frönskunámi. Allt sem þú varst að gera, sex árum eldri en ég, fannst mér svo spennandi. Þú kunnir alveg að skemmta þér og varst umkringd svo mörgum vinum á þínum yngri árum.
Tíminn leið hratt og þú komst heim að vinna hjá Icelandair yfir sumartíma, kenndir einnig dans hjá Dansskóla Sigvalda. Þú eignaðist þína tvær yndislegu dætur, Kristínu Unu og Tönju Marín. Eftir það tók við spennandi starf hjá RÚV - umsjón með Stundinni okkar. Þú vannst alltaf mjög mikið hvort sem var á RÚV, Stöð 2 eða hjá RVK Studios, elskaðir allt sem viðkom miðlum. Seinna tóku við kaup á erlendu efni fyrir sjónvarp og íslensk þáttagerð fyrir sjónvarp. Sl. 20 ár naustu þín vel í íslenskri kvikmyndagerð hjá RVK Studios þar sem þér var alltaf mjög í mun að hlutirnir sem sneru að fyrirtækinu yrðu gerðir 100% - þú þurftir endalaust að sannreyna hluti. Þú gast pirrast á lélegum vinnubrögðum en á sama hátt dásamað duglegt fólk sem var svo vel starfi sínu vaxið.
Seinni árin þín var það fjölskyldan, dætur þínar, makar og fjögur barnabörn sem voru þín hamingja. Þú gast verið að sýna manni vídeó af barnabörnum og þá kom svo mikill gleðisvipur yfir andlit þitt. Þú dásamaðir að komast í sund og 42° heitan pott eftir vinnu og líka um helgar - já það eigum við sameiginlegt að vilja hafa pottinn vel heitan. Þú kenndir mér að sjá það fallega í stóru sem smáu.
Þú dásamaðir fallegt veður á Íslandi og hvað það væri best að búa hér,
dásamaðir Hafnarfjörðinn þar sem þú bjóst síðustu árin þín, dásamaðir hvítu
dúkana á Spáni á fallegum veitingastöðum við ströndina og þegar boðið var
upp á hvítmunstraðar taumunnþurrkur á veitingastöðum. Þú dásamaðir fallega
framkomu fólks og hógværð. Þú áttir mjög mikinn tíma með mömmu okkar eftir
að pabbi dó 2007 og þið voruð þið eins og systur enda bara 18 ár á milli
ykkar. Eftir vinnu hringdirðu yfirleitt í hana og komst við hjá henni. Það
var varla hægt að hringja í ykkur þegar enski boltann var um helgar, HM eða
EM í handbolta - já á fyndinn hátt þá fann maður að maður var að trufla. Þú
ýttir áhugaverðum innihaldsríkum bókum að mömmu okkar eins og
Karítas-bókunum og komst henni upp á lagið að gerast algjör bókaormur sem
hún er í dag og nýtur þess vel.
Þú passaðir upp á systkinabörnin sem eru orðin 17 og talaðir alltaf svo
fallega um þau öll - útskýrðir að allir þyrftu frelsi og nauðsynlegt væri
að reka sig á hluti til að þroskast og átta sig á lífinu. Þú lagðir þig
alltaf einstaklega fram að gefa rausnarlegar gjafir og skrifa falleg
skilaboð inn í kortin með einstaklega fallegri rithönd. Þú varst á svo
margan hátt svo góð fyrirmynd, með heilbrigða skynsemi og gott hjarta.
Augun eru full af tárum og sorg í hjarta með að ekki hafi náðst að fá svar
frá Lyfjanefnd LSR um hvort samþykkt hefði verið lyf til notkunar sem gat
hugsanlega gefið þér betra líf í óákveðinn tíma. Í veikindunum þínum þá
veit ég að þú fannst kærleikann frá okkur öllum, mömmu okkar, dætrum þínum,
okkur systkinum og ekki síst systkinabörnum í gegnum erfiða ferlið þitt sl.
ár. Ég er glöð að við gátum sýnt hann og náð að létta undir og sagt þér oft
hve mikið við elskuðum þig. Góða ferð elsku sys.
Þín systir,
Svava.