heilahvelin GLAS af vatni, brjóstnudd og bolteygjur; vinstri olnbogi að hægra hné og öfugt, hafa reynst auðvelda finnskum börnum að einbeita sér, að sögn kennara þeirra. Hafa þeir farið að ráðum sérfræðinga sem telja að einfaldar æfingar sem örva

Leikfimi fyrir

heilahvelin

GLAS af vatni, brjóstnudd og bolteygjur; vinstri olnbogi að hægra hné og öfugt, hafa reynst auðvelda finnskum börnum að einbeita sér, að sögn kennara þeirra. Hafa þeir farið að ráðum sérfræðinga sem telja að einfaldar æfingar sem örva starfsemi heilahvelanna auki einbeitingarhæfni barnanna.

Tilraunir með þetta hafa verið í borginni Lahti í Finnlandi. Hafa þær orðið til þess að ró kemst á í tilraunabekkjunum eftir fimm mínútur en það tekur að jafnaði fimmtán mínútur.

Dæmi um einfalda æfingu er eftirfarandi: Stattu upp. Krossleggðu hendur og dragðu að brjóstinu, krossleggðu fótleggi, horfðu beint upp í loft og stattu grafkyrr.