Kuldajakki tapaðist SVARTUR kuldajakki var tekinn í misgripum föstudagskvöldið 27. desember sl. á skemmtistaðnum Tunglinu. Sá sem kannast við þetta er vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 555-0053. "Hall" í Háskólabíói SIGFÚS Gunnarsson hringdi í

Tapað/fundið

Kuldajakki tapaðist

SVARTUR kuldajakki var tekinn í misgripum föstudagskvöldið 27. desember sl. á skemmtistaðnum Tunglinu. Sá sem kannast við þetta er vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 555-0053.

"Hall" í Háskólabíói

SIGFÚS Gunnarsson hringdi í Velvakanda og var óhress með að salir í Háskólabíói væru kallaðir "hall" í staðinn fyrir salur, honum þætti gaman að heyra hvaða skýringu forráðamenn Háskólabíós hefðu á þessu.