Fyrirspurn vegna greinar um vændi
GUÐRÚN Jóhannsdóttir, Túngötu 20, Bessastaðahreppi, hringdi með eftirfarandi fyrirspurn vegna greinar sem birtist í Morgunblaðinu 3. janúar eftir Halldór Jónsson verkfræðing og óskar eftir svari frá honum.
Telur Halldór að íslenskar stúlkur eigi erindi í vændi? Hefur hann lesið bókina "Þegar vonin ein er eftir" og aðrar sjálfsævisögur vændiskvenna? Veit Halldór að ungar stúlkur sem eru neyddar út í vændi af melludólgum sem pína þær út í vændi með því að gera þær háðar eiturlyfjum og hirða afreksturinn af vændinu? Á Halldór dætur eða aðrar stúlkur nákomnar sem hann vildi óska slíkrar ævi?
Tapað/fundið
Gullarmband fannst
GULLARMBAND fannst fyrir utan Glæsibæ 21. desember. Upplýsingar í síma 553-7112.
Reiðhjól fannst
TRECK-Mountain reiðhjól fannst á horninu á Melgerði og Háagerði. Upplýsingar í síma 581-1165.
Varðandi týnda hunda
ÞEIR hundaeigendur sem týnt hafa hundum sínum eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við dýraspítalann í Víðidal strax í síma 5674020.
Penni tapaðist
DUNHILL kúlupenni tapaðist í eða við skáp númer 374 í karlaklefa sundlaugarinnar í Laugardal, fimmtudaginn 2. janúar síðastliðinn. Skilvís finnandi er vinsamlega beðinn um að skila pennanum í afgreiðslu sundlaugarinnar. Fundarlaunum er heitið.