Nýju ári fagnað á Frostrós
NÝÁRSDANSLEIKURINN Frostrós, sem Eskimó módels stóð fyrir til styrktar Alnæmissamtökunum, fór fram að kvöldi nýársdags á veitingastaðnum Astro. Fjölmenni mætti í sínu fínasta pússi á dansleikinn, snæddi málsverð og fylgdist með skemmtiatriðum. Fyrirhuguðu listaverkauppboði var frestað. Ljósmyndari Morgunblaðsins fór á lakkskónum á Astro.
Morgunblaðið/Halldór GESTIR fylgjast með tískusýningu þar sem sýnd voru föt eftir fatahönnuðinn Filippíu Elíasdóttur.
MÓEIÐUR Júníusdóttir þenur raddböndin við undirleik félaga sinna í hljómsveitinni Bong.
HRAFNHILDUR Hafsteinsdóttir, Birta Björnsdóttir og Jóhann Kristjánsson.