með þeim Kevin Bacon, Brad Pitt, Jason Patrick, Robert DeNiro og Dustin Hoffman í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um fjóra vini sem á fullorðinsárum ná fram hefndum vegna misþyrminga sem þeir verða fyrir sem unglingar á betrunarheimili. Stund

KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir nýjustu mynd leikstjórans Barry Levinson, Sleepers, með þeim Kevin Bacon, Brad Pitt, Jason Patrick, Robert DeNiro og Dustin Hoffman í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um fjóra vini sem á fullorðinsárum ná fram hefndum vegna misþyrminga sem þeir verða fyrir sem unglingar á betrunarheimili.

Stund

hefndarinnar

EINT á sjöunda áratugnum ganga fjórir strákar, sem búa í hverfi á Manhattan í New York sem í daglegu tali kallast Hells's Kitchen, eða kokkhús kölska, einum of langt í prakkaraskap sínum og óviljandi verða þeir manni næstum því að bana. Hart er tekið á brotinu og pörupiltarnir sendir í betrunarskóla þar sem þeim er ítrekað misþyrmt, m.a. kynferðislega, af gæslumönnum þeirra sem haldnir eru kvalalosta. Mörgum árum síðar hafa leiðir félaganna fjögurra skilið og er einn þeirra, Michael, orðinn aðstoðarsaksóknari og annar, Shakes, er orðinn blaðamaður í New York. Tveir félaganna, þeir Tommy og John, hafa hins vegar gengið glæpaveginn og ánetjast eiturlyfjum. Fyrir tilviljun rekast þeir á gæslumanninn sem forystu hafði um misþyrmingar þeirra í æsku og drepa þeir hann samstundis á bar þar sem fundum þeirra ber saman. Þeir eru dregnir fyrir rétt, en með aðstoð gömlu félaganna og annarra sem tengjast þeim í gamla hverfinu tekst þeim að ná fram hefndum fyrir það sem þeir urðu að þola á betrunarheimilinu.

Leikstjóri Sleepers, höfundur kvikmyndahandritsins og annar framleiðandi myndarinnar er Barry Levinson, en hinn framleiðandi myndarinnar er Steve Golin, sem á sínum tíma stofnaði Propaganda Films ásamt Sigurjóni Sighvatssyni. Myndin er gerð eftir samnefndri bók sem kom út 1995 og náði mikilli metsölu, en höfundur hennar er blaðamaðurinn Lorenzo Carcaterra. Hann sagði bókina byggja á sönnum atburðum sem hann hefði sjálfur upplifað sem einn fjórmenninganna, en bæði kaþólska kirkjan og embætti saksóknarans í New York sóru af sér að umræddir atburðir hefðu nokkru sinni átt sér stað. Miklar deilur urðu eftir útgáfu bókarinnar um það hvort efni hennar væri uppspuni frá rótum eður ei, og þær deilur mögnuðust upp á nýjan leik eftir frumsýningu myndarinnar í vetur.

Þekktir leikarar eru í stórum sem smáum hlutverkum í Sleepers. Með hlutverk barnaníðingsins og hrottans Sean Nokes fer Kevin Bacon, en hann hefur einmitt getið sér orð fyrir að geta brugðið sér í nánast hvaða hlutverk sem er og þá ekki síst að leika flókna eða truflaða persónuleika. Þannig er skemmst að minnast han sem fangans í Murder in the First (1995), fautans í River Wild (1994), landgönguliðans í A Few Good Men (1992) og samsærismannsins í JFK (1991), en síðast sást Bacon á hvíta tjaldinu í hlutverki geimfara í Apollo 13.

Í hlutverki prestsins, föður Bobby, er hinn afkastamikli Robert DeNiro sem alls hefur nú leikið í rúmlega 50 kvikmyndum, en á síðasta ári lék hann í fjórum myndum og er skemmst að minnast hans úr The Fan. Á næsta ári verða frumsýndar að minnsta kosti fjórar myndir sem hann fer með hlutverk í, en það eru Affirmative Action, Great Expectations, CopLand og Wag the Dog.

Dustin Hoffman leikur lögfræðinginn Danny Snyder. Hoffman á nú að baki um 35 kvikmyndir, en síðast sást hann í Outbreak sem gerð var 1995. Undanfarin ár hefur hann yfirleitt aðeins leikið í einni kvikmynd á ári, en á þessu ári eru hins vegar væntanlegar a.m.k. tvær myndir með honum, en það eru Sphere, sem Barry Levinson leikstýrir, og Mad City, sem Costa-Gavras leikstýrir, en í henni leikur Hoffman á móti John Travolta.

Brad Pitt fer með hlutverk aðstoðarsaksóknarans Michaels. Hann hefur verið einn eftirsóttasti leikarinn af yngri kynslóðinni í Hollywood síðan hann lék í kvikmynd Ridleys Scotts, Thelmu & Louise, árið 1991. Síðan hefur hann leikið í tólf kvikmyndum og hafa hæfileikar hans fengið að njóta sín til hins ýtrasta í myndum á borð við A River Runs Through It, Kalifornia, True Romance, Interview With The Vampire og Seven. Jason Patrick leikur blaðamanninn Shakes sem segir sögu félaganna fjögurra. Patrick lék sitt fyrsta kvikmyndahlutverk í mynd Joels Schumachers, The Lost Boys (1987), en síðan hefur hann m.a. leikið í Rush (1991) og Geronimo (1993). Á eftir Sleepers lék Patrick í Incognito á móti Irene Jacob og næsta viðfangsefni hans verður að leika á móti Söndru Bullock í Speed II. Með hlutverk Tommys fer Billy Crudup sem hefur getið sér gott orð á Broadway, en þetta er frumraun hans á hvíta tjaldinu. Næsta mynd hans er nýjasta mynd Woody Allens, Everybody Says I Love You, sem frumsýnd verður síðar á þessu ári. Ron Eldard leikur John og hefur hann m.a. leikið í sjónvarpsþáttaröðinni ER og kvikmyndunum Scent of a Woman og True Love.

FÉLAGARNIR ganga of langt í prakkaraskap sínum og verða að dúsa á betrunarheimili þar sem hrikaleg lífsreynsla setur mark sitt á þá.

KEVIN Bacon leikur barnaníðinginn og hrottann Sean Nokes, sem er forsprakki gæslumannanna á betrunarhælinu í misþyrmingunum.

ROBERT DeNiro leikur prestinn, föður Bobby, sem leggur sitt lóð á vogarskálarnar til þess að félagarnir fjórir geti náð fram hefndum.