ALLS hafa í kringum 15.000 manns séð Jólahasar, í Regnboganum og víðar, með Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki. Þá hafa tæp 2000 séð Einstirni, um 9000 Hetjudáð og tæp 3000 Svanaprinsessuna. Næstu myndir Regnbogans eru m.a. spennutryllirinn Extreme

Um 15.000 séð Jólahasar

ALLS hafa í kringum 15.000 manns séð Jólahasar, í Regnboganum og víðar, með Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki.

Þá hafa tæp 2000 séð Einstirni, um 9000 Hetjudáð og tæp 3000 Svanaprinsessuna.

Næstu myndir Regnbogans eru m.a. spennutryllirinn Extreme Measures" með Hugh Grant, One Fine Day" með George Clooney og Michelle Pfeiffer, She's The One" eftir höfunda McMullenbræðra, The Spitfire Grill" og Óþelló.

Einnig eru væntanlegar í Regnbogann myndir eins og "The English Patient", The Crucible" eða Í deiglunni, "Volcano" og Rómeó og Júlía.

Þá mun Regnboginn sýna Stjörnustríðsbálkinn í vor þegar hann fer í endurdreifingu.

Sýnd á næstunni; Pfeiffer í One Fine Day".