ÞRÁTT fyrir að Sara Ferguson og Andrew prins séu löngu skilin búa þau saman. "Það er nóg rúm fyrir okkur bæði í húsinu," segir Sara "þannig að við getum lifað okkar lífi." Sara segist alls ekki vera afbrýðisöm út í unnustu Andrew. Sögur herma reyndar að Sara sé á höttunum eftir nýjum eiginmanni. "Sara vill nýjan mann.
Sara Ferguson í leit að nýjum manni

ÞRÁTT fyrir að Sara Ferguson og Andrew prins séu löngu skilin búa þau saman. "Það er nóg rúm fyrir okkur bæði í húsinu," segir Sara "þannig að við getum lifað okkar lífi." Sara segist alls ekki vera afbrýðisöm út í unnustu Andrew. Sögur herma reyndar að Sara sé á höttunum eftir nýjum eiginmanni. "Sara vill nýjan mann. Hún vill sanna að hún geti staðið á eigin fótum og bjargað sér án þess að þurfa að reiða sig á konungsfjölskylduna," segja vinkonur hennar.