SÖNGKONAN Suzanne Vega á þá ósk heitasta að dóttir hennar verði sjávarlíffræðingur. "Hún myndi mæta í tilraunastofuna á morgnana og vinna umhverfismálum gagn í sínu starfi." Hitt er annað mál að um þessar mundir þykir henni ekki mjög líklegt að þessi draumur rætist.
Draumar móður

SÖNGKONAN Suzanne Vega á þá ósk heitasta að dóttir hennar verði sjávarlíffræðingur. "Hún myndi mæta í tilraunastofuna á morgnana og vinna umhverfismálum gagn í sínu starfi." Hitt er annað mál að um þessar mundir þykir henni ekki mjög líklegt að þessi draumur rætist. Dóttur hennar (sem er reyndar ekki nema þriggja ára gömul) þykir fátt skemmtilegra en að syngja og kann heilu söngleikina utan af. Segir ekki máltækið að sjaldan falli eplið langt frá eikinni?

SUZANNE Vega á sér draum um frama dóttur sinnar.