SÖNGVARINN geðþekki Gary Barlow er ánægður með endalok Take That. Það þýðir að hann getur einbeitt sér að eigin ferli. Hann hugsar líka meira um útlitið nú en þegar hann var með hljómsveitinni. "Þá skipti það mig ekki svo miklu máli hvernig ég leit út en nú vil ég líta eins vel út og hægt er.

Gary

gulldrengur

SÖNGVARINN geðþekki Gary Barlow er ánægður með endalok Take That. Það þýðir að hann getur einbeitt sér að eigin ferli. Hann hugsar líka meira um útlitið nú en þegar hann var með hljómsveitinni. "Þá skipti það mig ekki svo miklu máli hvernig ég leit út en nú vil ég líta eins vel út og hægt er." Draumur Gary er að slá í gegn á Bandaríkjamarkaði og hefur hann jafnvel í hyggju að flytja vestur um haf til að vinna að frama sínum þar.

GARY Barlow hefur mikinn metnað.