GILLIAN Anderson sem þekkt er fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum X-Files vonast til að slá í gegn í tónlistarheiminum. Hún er þegar búin að gefa út sína fyrstu smáskífu. Annars á Gillian í launabaráttu þessa dagana. Hún er ekki ánægð með að vera aðeins hálfdrættingur í launum miðað við mótleikara sinn, David Duchovny.
Ljúfir tónar og launabarátta