KOMIN er út bókin Dagbókin mín - minningar um fyrstu fimm árin. Bókin sem þýdd er úr ensku er gefin út af Kórund ehf og eru ljósmyndirnar allar eftir Anne Geddes. Anne hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar fyrir myndir sínar. Foreldrar eða aðrir forráðamenn geta skráð í bókina merka atburði sem eiga sér stað fyrstu árin og límt inn myndir.
Nýtt Dagbók um fyrstu fimm árin

KOMIN er út bókin Dagbókin mín - minningar um fyrstu fimm árin. Bókin sem þýdd er úr ensku er gefin út af Kórund ehf og eru ljósmyndirnar allar eftir Anne Geddes. Anne hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar fyrir myndir sínar. Foreldrar eða aðrir forráðamenn geta skráð í bókina merka atburði sem eiga sér stað fyrstu árin og límt inn myndir. Sérstaklega er gert ráð fyrir að skrifað sé um fæðinguna og fyrstu dagana heima, þroska barnsins fyrsta árið, uppáhaldsleikföngin, líkamsþroska, afmælisdagana og svo framvegis.