FJÖLBREYTT hátíðahöld vegna þjóðhátíðardagsins eru í Reykjavík að venju, samanber upplýsingar þar um í tilkynningum í Morgunblaðinu í dag. Auk þess eru hátíðarhöld í nágrannasveitarfélögunum og í sveitarfélögum um allt land með hefðbundnum hætti.

Hátíðahöld á

þjóðhátíðardaginn

FJÖLBREYTT hátíðahöld vegna þjóðhátíðardagsins eru í Reykjavík að venju, samanber upplýsingar þar um í tilkynningum í Morgunblaðinu í dag. Auk þess eru hátíðarhöld í nágrannasveitarfélögunum og í sveitarfélögum um allt land með hefðbundnum hætti.

Víðavangshlaup fyrir 16 ára og yngri og skemmtiganga eldri borgara hefjast við Kópavogsvöll kl. 10. Messað verður í Kópavogskirkju kl. 13 og flytur frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir stólræðu en kór Kópavogskirkju og Karlakór Reykjavíkur syngja. Skrúðganga leggur af stað kl. 14 frá Menntaskólanum í Kópavogi að Rútstúni og Skólahljómsveit Kópavogs og skátar fara fyrir göngunni. Útihátíð verður á Rútstúni milli kl. 14.30 og 18. Forseti bæjarstjórnar flytur hátíðarræðu og fjallkonan ávarpar samkomuna. Fjöllistamenn leika listir sínar, dansatriði verða og Furðuleikhúsið flytur skemmtiþátt. Magnea Tómasdóttir mun flytja einsöng og dixibandið Öndin og hljómsveitin Dead Sea Apple skemmta hátíðagestum. Leiktæki, veitingasala og ýmsar uppákomur verða á túninu. Klukkan 17 verður leikin knattspyrnuleikur á Kópavogsvelli milli 4. fl. Breiðabliks og HK til minningar um Daða Sigurvinsson.

Ókeypis veiði í Garðabær

Við Arnarnesvog verður útsýnissigling frá kl. 9.30 til 12. Við Hofstaðaskóla á milli kl. 10 og 12 verður víðavangshlaup fyrir börn 6­13 ára, götukörfubolti, línuskautar fyrir 10­12 ára og hjólabretti. Boðið verður upp á fjöltefli við stórmeistara en einnig verður náttúruskoðun og veiðiferð í mýrinni fyrir yngri kynslóðina. Veiði verður ókeypis við Vífilsstaðavatn fyrir alla Garðbæinga.

Í Vídalínskirkju hefst hátíðarstund kl. 13 og skrúðganga leidd af fánaborg skáta og Lúðrasveit Garðabæjar leggur af stað þaðan hálftíma síðar að Garðaskóla. Þar verður hátíðin formlega sett kl. 14 og fjallkonan flytur ávarp. Starfsstyrkur listamanns verður afhentur, skólakór Garðabæjar syngur og léttsveit tónlistaskóla Garðabæjar spilar. Við Garðaskóla verður skátaþrautabraut, koddaslagur, svifbraut, andlitsmálun, tívolíleiktæki og sælgæti dreift úr flugvél svo eitthvað sé nefnt.

Kvenfélag Garðabæjar verður með kaffihlaðborð við Garðalund kl. 15 og uppákomur við íþróttamiðstöðina verða milli kl. 16 og 17. Þar verður Lúðrasveitin, dansatriði, verðlaunaafhending, hæfileikakeppni, fimleikar og Magnús Scheving í hlutverki íþróttaálfsins. Um kvöldið spilar diskótekið Dísa fyrir kynslóðina í Garðalundi frá kl. 20.30 til 21.45 en þá tekur Páll Óskar Hjálmtýsson við til kl. 22.30.

Flugvélasýning í Mosfellsbæ

Í Varmárlaug hefst kl. 10 sundmót á vegum sunddeildar UMFA og kl. 11 er fjölskylduhlaup á vegum frjálsíþróttardeildar UMFA á Varmárvelli. Skrúðganga verður farin frá íþróttahúsinu í Álafosskvos kl. 13.30 og fara skátar og skólahljómsveit Mosfellsbæjar fyrir göngunni. Skemmtidagskráin í Álafosskvosinni hefst svo með hátíðarræðu og afhendingu menningarverðlauna. Karlakórinn Stefnir syngur og leiktæki, barnatjald, andlitsmálun og fleira verður í boði. Á Tungubökkum verða flugvélar og flugstæðið til sýnis og möguleiki á útsýnisflugi. Halli og Laddi bregða á leik kl. 14.30 en kl. 15 mun Leikfélag Mosfellsbæjar skemmta. Skátafélagið Mosverjar og unglingadeild Kyndils verða með leiki og leiktæki á svæðinu og töframaður mætir á svæðið kl. 15.30 og sýnir listir sínar. Leiklistarklúbbur Varmárskóla sýnir leikþátt kl. 16 og börn af leikskólanum Hlaðhömrum koma fram. Leikfélag Mosfellssveitar skemmtir börnunum kl. 16.30 og kl. 17 verður diskótekið Dísa með barnadansleik. Unglingadansleikur verður í Álafosskvosinni á milli kl. 21 og 01 en þar munu hljómsveitirnar Maus, Spitsign, Gimp og Sól dögg koma fram.

Unglingahljómsveitir í Hafnarfirði

Hátíðin í Hafnarfirði hefst kl. 8 með fánahyllingu og kl. 10 verður frjálsíþróttamót leikjanámskeiða á Hörðuvöllum. Á sama tíma munu yngri flokkar Hauka og FH í knattspyrnu mætast á Víðistaðatúni. Í Hellisgerði hefst helgistund kl. 13.15 og Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur og Eldri Þrestir syngja. Að lokinni helgistund verður lagt af stað í skrúðgöngu að Víðistaðatúni þar sem fjölskylduhátíð hefst kl. 14.30. Þar mun bæjarstjóri og fjallkonan flytja ávörp sín og barnaskemmtun verður í umsjón Hafnarfjarðarleikhússins Hermóðar og Háðvarar.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, mun leggja hornstein að skátamiðstöðinni við Víðistaðatún kl. 16 og kl. 17 hefst 17. júní mótið í handbolta í íþróttahúsinu við Strandgötu. Tónleikar á Thorsplani hefjast kl. 17.30 með hafnfirskum unglingahljómsveitum. Á Thorsplani byrjar fjölskylduskemmtun kl. 20.30 með ávarpi nýstúdents en m.a. munu Halli og Laddi, íþróttaálfurinn, listhópur vinnuskólans og dansarar koma fram. Páll Óskar, Milljónamæringarnir, Bjarni Ara og Raggi Bjarna auk hafnfirskra víkinga munu halda uppi fjörinu. Í Vitanum verða gömlu dansarnir kl. 21.30 og í Hafnarborg hefjast djasstónleikar kl. 22. Dagskrárlok verða kl. 0.30.

Fjölskyldudansleikur í Reykjanesbæ

Í Njarðvík hefjast knattspyrnuleikur og púttmót kl. 10 og víðavangshlaup fyrir alla fjölskylduna við Njarðvíkurvöll kl. 11. Hátíðarmessur verða í Keflavíkurkirkju og Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 12.30 og skrúðgöngur leggja af stað frá báðum kirkjum kl. 13.20 í átt að Skrúðgarðinum. Þar hefst hátíðardagskráin kl. 14 með hátíðarræðu og ávarpi fjallkonu. Valinn verður listamaður Reykjanesbæjar 1997 og Karlakór Keflavíkur syngur. Einnig verður dans, Skari skrípó sprellar og töfrar og Kvennakór Suðurnesja syngur. Magnús Scheving og félagar úr Latabæ auk Páls Óskars verða á staðnum. Á torginu við Tjarnagötu hefst kvöldskemmtun kl. 20 með Léttsveit tónlistaskólanna en efnilegir söngvarar byrja kl. 20.30. Pétur Pókus mætir kl. 21 og töfrar áhorfendur og þrír Spaugstofubræður mæta kl. 21.45. Hljómsveitin Reggae on Ice spilar á milli kl. 22.20 og 0.30.

Í Stapanum verður fjölskyldudansleikur frá kl. 20 til 23 með hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar. Í Selinu við Vallarbraut verður kvöldskemmtun fyrir eldri borgara frá kl. 20 til miðnættis.

Götubolti á Selfossi

Opið hús verður hjá Slökkvistöðinni á Selfossi, Lögreglunni í Árnessýslu og Björgunarsveitinni Tryggva milli kl. 10 og 12. Í hesthúsahverfinu verður yngri kynslóðinni boðið á hestbak milli kl. 10 og 12 en "ónytjurölt" hefst frá Tryggvaskála kl. 10.

Helgistund hefst í Selfosskirkju kl. 13 og messar sr. Þórir Jökull Þorsteinsson og kirkjukórinn syngur. Skrúðganga fer frá Selfosskirkju kl. 13.30 og fara skátar og hestamenn fyrir göngunni að íþróttahúsinu. Hátíðardagskráin hefst kl. 14 í íþróttahúsinu og ávarpar fjallkonan samkomuna. Einnig verður fánahylling, þolfimisýning, tískusýning og barnakórinn syngur. Við sundlaugina hefst skemmtunin kl. 15 þar sem nýtt útivistarsvæði verður tekið í notkun með viðhöfn. Opna Fossnestismótið í götubolta hefst kl. 16 á plani Fjölbrautaskóla Suðurlands. Á íþróttavellinum verður sælgætisregn úr flugvél kl. 16.30, ef veður leyfir, og á Bankavegi verður farið í leiki kl. 17. Dansleikur í tjaldinu fyrir yngri kynslóðina hefst kl. 17 með hljómsveitunum Skítamóral og NN.

Menningardagskrá á Hótel Selfossi hefst kl. 20.30 en þar koma fram Karlakór Selfoss, Leikfélag Selfoss og söngflokkurinn Leiðarljósin. Harmoníkuball byrjar kl. 21 í Tryggvaskála og dansleikur í tjaldinu með hljómsveitunum Skítamóral og NN verður frá kl. 21 til 01.

Afmælisræða og danskennsla á Egilsstöðum

Sala á gasblöðrum og öðru tilheyrandi hefst við Hettuna kl. 12 og boðið verður upp á andlitsmálun. Skrúðganga verður farin frá Hettunni kl. 13 og liggur leiðin að hátíðarsvæðinu í Vémörk undir leik lúðrasveitar og í fylgd hestamannafélagsins Freyfaxa. Hátíðarguðþjónusta hefst kl. 13.30 og messar sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson og Kirkjukór Egilsstaðakirkju syngur. Fjallkonan heldur ræðu og leikþáttur frá leikfélaginu verður sýndur. Bárukvartettinn og barnakórinn skemmta gestum og haldinn verður sérstök afmælisræða bæjarins. Boðið verður upp á ýmsar kaffiveitingar í Vémörk á milli kl. 15 og 17. og leikir og önnur skemmtun fyrir börnin verður á meðan.

Hátíðardansleikur verður í Vémörk frá kl. 20 til miðnættis en fram koma Shape, Harmoníkufélagið og Fiðrildin og Eymundur Hannesson kenna dans.

Söngvarakeppni á Ísafirði

Messað verður í Ísafjarðarkirkju kl. 11 en kl. 13.20 verður safnast saman á Silfurtorginu þar sem lagt verður af stað í skrúðgöngu kl. 13.50 að hátíðarsvæðinu við gamla sjúkrahúsið. Þar verður hátíðin sett kl. 14 með hátíðarræðu Úlfars Ágústssonar. Sunnukórinn mun syngja og fjallkonan ávarpar hátíðargesti. Sólarkvartettinn skemmtir og söngvarakeppni verður haldin auk aflraunasýningar, svampakasts, kassabílasýningar, pokahlaups og körfukeppni. Á palli munu Sægreifarnir spila og hljómsveitin Woofer. Sýning Péturs Guðmundssonar í Fagranesi verður frá kl. 16 til 22 og á boðstólum verður þjóðhátíðarkaffi og meðlæti.