SKÓGGANGSMAÐUR er talinn hafa gengið laus á Akureyri aðfaranótt laugardags en þá var lögreglu tilkynnt að felldar hefðu verið þrjár 3 metra háar aspir í garði við Hrafnagilsstræti. Málið er óupplýst. Á sunnudagsnótt var bíl stolið frá Byggðavegi.
Þrjár aspir felldar í

húsagarði

SKÓGGANGSMAÐUR er talinn hafa gengið laus á Akureyri aðfaranótt laugardags en þá var lögreglu tilkynnt að felldar hefðu verið þrjár 3 metra háar aspir í garði við Hrafnagilsstræti. Málið er óupplýst.

Á sunnudagsnótt var bíl stolið frá Byggðavegi. Hann fannst skömmu síðar við Hjarðarlund en þá var búið að brjóta innréttingu bílsins og stela úr honum sambyggðu útvarpi og geislaspilara, ásamt kvenveski, seðlaveski og minnisbók.