SONUR Bobs Dylans, Jakob Dylan, hefur fetað í fótspor föður síns og heldur sig í heimi popptónlistarinnar. Hann er söngvari hljómsveitarinnar The Wallflowers sem hefur gert það gott upp á síðkastið. Hann segir að í upphafi ferilsins hafi allir búist við því að hann nýtti sér það að vera sonur föður síns. Jakob lét það vera og er ánægður með það.
Upp á eigin spýtur

SONUR Bobs Dylans, Jakob Dylan, hefur fetað í fótspor föður síns og heldur sig í heimi popptónlistarinnar. Hann er söngvari hljómsveitarinnar The Wallflowers sem hefur gert það gott upp á síðkastið. Hann segir að í upphafi ferilsins hafi allir búist við því að hann nýtti sér það að vera sonur föður síns. Jakob lét það vera og er ánægður með það. JAKOB Dylan vill vera metinn að eigin verðleikum.