"VIÐ Michael búum ekki saman. Hann er ennþá ástfanginn af Lisu-Mariu Presley," segir Debbie Rowe barnsmóðir Michaels. "Ég hef ekki séð son okkar í margar vikur." Þrátt fyrir þetta er Debbie enn ástfangin af Michael. Debbie hefur þekkt stjörnuna í fimmtán ár en hún kynntist honum í gegnum starf sitt sem hjúkrunarkona.

Debbie enn ástfangin!

"VIÐ Michael búum ekki saman. Hann er ennþá ástfanginn af Lisu-Mariu Presley," segir Debbie Rowe barnsmóðir Michaels. "Ég hef ekki séð son okkar í margar vikur." Þrátt fyrir þetta er Debbie enn ástfangin af Michael. Debbie hefur þekkt stjörnuna í fimmtán ár en hún kynntist honum í gegnum starf sitt sem hjúkrunarkona. "Viku eftir skilnaðinn við Lisu-Mariu í fyrra hringdi Michael í mig og spurði hvort ég vildi giftast honum. Ég játaðist honum um leið." Í dag býr Debbie í eigin íbúð í Los Angeles. Sonur þeirra býr hjá Michael og fær hún að hitta hann tvisvar í mánuði.

HJÓNIN stilltu sér upp fyrir myndatöku þegar Prince Michael var nýkominn í heiminn