Missti stjórn
á bifhjóli
PILTUR liggur alvarlega slasaður
á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir að hann missti stjórn á bifhjóli sem hann ók og lenti á steyptri girðingu við gatnamót Hafnarbrautar og Sjávargötu í Njarðvík síðdegis í gær.
Hann var fluttur á Sjúkrahús Suðurnesja en að lokinni skoðun þar var farið með hann á Sjúkrahús Reykjavíkur. Jón Baldursson, læknir á vakt á slysadeild, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að pilturinn væri talsvert mikið slasaður en þó ekki talinn í bráðri lífshættu. Fyrst og fremst er um að ræða höfuð- og andlitsáverka.