MIKIÐ var að gerast hjá Bergþóru Laxdal á laugardaginn en hún náði ekki sjálf að fylgjast með allri atburðarásinni. Hún lék með liði sínu, Val, gegn ÍBA á Hlíðarenda og skoraði tvö góð mörk en lenti síðan í samstuði við markvörð Akureyringa og rotaðist. Hringt var eftir sjúkrabíl og rankaði Bergþóra við sér skömmu síðar.

Mikið að

gerast hjá

Bergþóru MIKIÐ var að gerast hjá Bergþóru Laxdal á laugardaginn en hún náði ekki sjálf að fylgjast með allri atburðarásinni. Hún lék með liði sínu, Val, gegn ÍBA á Hlíðarenda og skoraði tvö góð mörk en lenti síðan í samstuði við markvörð Akureyringa og rotaðist. Hringt var eftir sjúkrabíl og rankaði Bergþóra við sér skömmu síðar. Hún fékk heilahristing en þar sem tvær vikur eru í næsta leik Valsstúlkna, má reikna með að hún verði mætt í slaginn á ný.