HJÁ Fasteignamarkaðinum er til sölu parhús við Fannafold 142. Þetta er steinsteypt hús, suðurendi. Það er 180 ferm. að stærð með innbyggðum 33 ferm. bílskúr. Húsið er byggt árið 1987. "Þetta er gott hús. Það er ekki fullbúið, en skipulag þess er afburðagott," sagði Þorlákur Einarsson hjá Fasteignamarkaðinum. "Niðri eru rúmgóðar stofur, sólskáli og rúmgott eldhús.
Vel skipulagt parhús

HJÁ Fasteignamarkaðinum er til sölu parhús við Fannafold 142. Þetta er steinsteypt hús, suðurendi. Það er 180 ferm. að stærð með innbyggðum 33 ferm. bílskúr. Húsið er byggt árið 1987.

"Þetta er gott hús. Það er ekki fullbúið, en skipulag þess er afburðagott," sagði Þorlákur Einarsson hjá Fasteignamarkaðinum. "Niðri eru rúmgóðar stofur, sólskáli og rúmgott eldhús. Uppi eru fjögur góð svefnherbergi og sjónvarpshol.

Baðherbergi er einnig á efri hæðinni. Svalir eru út af efri hæðinni ofan á bílskúr. Lofthæð er góð. Húsið er ekki fullbúið en allt sem gert hefur verið er vandað. Lóð er að mestu leyti frágengin. Staðsetning hússins er góð miðað við verslanir og skóla.

Það koma sjaldan eignir í sölu á þessu svæði. Nú er því lag til að eignast gott hús á góðum stað. Ásett verð er 14,5 millj. kr., en hagstætt byggingarsjóðslán er áhvílandi."

FANNAFOLD 142 er parhús á tveimur hæðum. Það er til sölu hjá Fasteignamarkaðin um og ásett verð er 14,5 millj. kr.