HJÁ fasteignasölunum Hóli og Eignaborg er nú til sölu 16 íbúða hús við Fálkahöfða 2­4 í Mosfellsbæ. Í húsinu eru tvær gerðir af þriggja herbergja íbúðum og ein gerð af fjögurra herbergja íbúðum. Húsið er svo til tilbúið til afhendingar, en fyrstu íbúðina á að afhenda 1. júlí nk., og hún er þegar seld. Húsið er steinsteypt, teiknað af Kjartani Sveinssyni.
Sextán íbúða hús í Mosfellsbæ

"Byggingaraðili er G. Þ. Byggingar, sem eru afar traustur og reyndur byggingaraðili,"sagði Elías Haraldsson hjá Hóli. "Um er að ræða tvær tegundir af þriggja herbergja íbúðum, þar sem önnur er 87 ferm. en hin 97 ferm. Þessi fermetrafjöldi er íbúðin sjálf,það er "nettó". Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 117 fermetrar."

Íbúðirnar eru allar með sérinngangi, en þrjár íbúðir eru á hverri hæð. Þvottahús er í hverri íbúð og gott, lokað eldhús.

Húsið er óvenjulega gerðarlegt, en fallegir útbyggðir gluggar eru í borðkróki í eldhúsi og stórar og myndarlegar svalir tilheyra hverri íbúð. Yfirbragð hússins er líka glæsilegt, t.d. breiður þakkantur.

Hægt er að fá keypta bílskúra ef menn hafa áhuga og eru þeir 28 ferm. Húsið er þannig staðsett að útsýnið er óvenjulega fagurt yfir sundin. Öll sameign og lóð verður frágengin svo og bílastæði.

Íbúðirnar eru seldar ýmist tilbúnar til innréttinga eða fullbúnar án gólfefna. Verð á þriggja herb. íbúðunum er frá 6,4 millj. kr. tilb. til innréttinga upp í 7,3 millj. kr. fullbúnar án gólfefna. Fjögurra herbergja íbúðirnar kosta 7,6 millj. kr. tilb. til innréttinga en 8,7 millj. kr. fullbúnar án gólfefna.

FÁLKAHÖFÐI 2­4. Í húsinu eru 16 þriggja og fjögurra herb. íbúðir. Þær eru til sölu hjá Hóli og Eignaborg.