Tvö laus
prestsembætti
EMBÆTTI héraðsprests í Kjalarnesprófastsdæmi og sjúkrahúsprests á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur hafa verið auglýst laus.
Séra Bjarni Þór Bjarnason, sem gegnt hefur starfi héraðsprests Kjalarnesprófastsdæmis, hefur verið kjörinn aðstoðarprestur í Garðaprestakalli. Umsóknarfrestur um starfið rennur út 10. júlí nk.
Séra Birgir Ásgeirsson sem var sjúkrahúsprestur á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefur verið skipaður til að þjóna sem sjúkrahúsprestur við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn og gegnir auk þess sóknarprestsstöðu fyrir Íslendinga í Gautaborg. Umsóknarfrestur um starf sjúkrahúsprests rennur út 26. júní nk.