GÓÐ hús í gamla bænum í Hafnarfirði hafa mikið aðdráttarafl fyrir marga. Hjá fasteignasölunni Valhúsum í Hafnarfirði er nú til sölu einbýlishús að Öldugötu 37. Þetta er steinhús á tveimur hæðum, 144 ferm. að stærð, byggt 1947.
Hafnarfjörður Einbýlishús við Öldugötu GÓÐ hús í gamla bænum í Hafnarfirði hafa mikið aðdráttarafl fyrir marga. Hjá fasteignasölunni Valhúsum í Hafnarfirði er nú til sölu einbýlishús að Öldugötu 37. Þetta er steinhús á tveimur hæðum, 144 ferm. að stærð, byggt 1947.

"Húsið skiptist í fjögur herbergi og tvær stofur," sagði Ólafur Ólafsson hjá Valhúsum. "Á efri hæðinni er flísalögð forstofa, eldhús með góðum innréttingum og dúk á gólfi, svefnherbergi með skáp, tvær samliggjandi stofur og flísalagt baðherbergi.

Á neðri hæð eru þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og þvottahús. Garðurinn er gróinn og fallegur og húsið er í góðu ástandi utanhúss. Að innan hefur það verið talsvert endurnýjað. Húsið stendur ofarlega við Öldugötuna í rólegu umhverfi en stutt er í skóla."

Ásett verð er 10,5 millj. kr., en ekkert áhvílandi. Hugsanlegt er að taka góða tveggja herbergja íbúð í Hafnarfirði upp í kaupverðið.

HÚSIÐ stendur við Öldugötu 37 í Hafnarfirði. Það er til sölu hjá Valhúsum, en ásett verð er 10,5 millj. kr.