HJÁ Eignamiðluninni er til sölu atvinnuhúsnæði að Lynghálsi 10 og Tunguhálsi 15 og 17. Húsnæðið að Lynghálsi er samtals 3146 ferm. að stærð og er þar um að ræða bæði verslunar- og skrifstofubyggingu á þremur hæðum auk riss. Húsin við Lyngháls eru annars vegar stórar vöruskemmur samtals um 2134 ferm. og hins vegar lagerhúsnæði alls 473 ferm. Allar byggingarnar eru nýlegar
Atvinnuhúsnæði við Lyngháls

"Allar þessar byggingar standa á sömu lóð við Lyngháls, en þær voru áður í eigu Þýzka-íslenzka verzlunarfélagsins (Metró)," sagði Sverrir Kristinsson hjá Eignamiðluninni. "Lyngháls 10 er eins og fyrr segir verslunar- og skrifstofubygging. Á jarðhæð er afgreiðsla fyrir verslun, en lager og skrifstofur eru uppi. Lóðin er malbikuð og afgirt,

Þarna er um að ræða eign sem myndi henta fyrirtæki sem hefur mikil umsvif og þarf bæði verslunarrými, skrifstofupláss og lagerrými. Í risi er stór salur fyrir stóra fundi og mannfagnaði.

Húsin eru öll í góðu ástandi. Í vöruskemmunum er mikil lofthæð og aðkoma góð. Þessar eignir standa á mjög áberandi stað og eru því ákjósanlegar fyrir fyrirtæki sem vill vekja athygli á sér og sinni starfsemi.

Að sögn Sverris er nú mikil eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Við á Eignamiðluninni höfum að undanförnu verið að auglýsa eftir skrifstofu- og verslunarhúsnæði fyrir viðskiptavini okkar og okkur hefur líka vantað iðnaðar- og lagerhúsnæði," sagði hann. Það var mikil sala í slíkum eignum á síðasta ári og því tiltölulega fáar eignir á skrá hjá okkur núna en margir kaupendur.

Ég held að áfram verði líflegt á fasteignamarkaðinum og hann mótist af þeirri bjarstýni sem ríkir um þessar mundir," sagði Sverrir Kristinsson að lokum.

LYNGHÁLS 10 er til sölu hjá Eignamiðluninni. Þetta hús næði er skrifstofu- og versl unarbygging, en auk þess eru til sölu á sömu lóð vöru skemmur og lagerhúsnæði.