Reynir Örn Kárason Ó, Jesú bróðir besti,

og barnavinur mesti,

æ breið þú blessun þína

á barnæskuna mína.

Elsku Reynir. Þú sem háðir svo harða baráttu fyrir lífi þínu þegar þú fæddist, svona agnarsmár og hafðir betur. Við áttum mjög ánægjulegar stundir þegar við pössuðum þig og systkini þín. Þú varst alltaf svo kátur og fjörugur. Við getum vart trúað því að við fáum aldrei oftar að sjá þig í þessum heimi.

Elsku Reynir, þú sem hefur yfirgefið okkur á þennan sorglega hátt ert kominn á þann stað sem við öll endum á. Við sendum fjölskyldu þinni samúðarkveðjur og vonum að skemmtilegu minningarnar frá þinni stuttu ævi hjálpi við að sefa sorgina.

Erla, Kristbjörg, Harpa og Olgeir.