Guðjón Magnússon Elsku afi okkar. Þú varst besti afi í öllum heiminum. Þú varst góður, fyndinn, fallegur og skemmtilegur. Okkur þótti alveg rosalega vænt um þig. Elsku besti afi, við áttum yndislegar stundir saman. Okkur fannst svo gaman að spila við þig og að láta þig mata okkur, þú vildir helst að við dyttum út af stólunum með magann fullan af mat og okkur eru sérstaklega minnisstæð ferðalögin okkar sem við munum geyma í hjörtum okkar. Kæri afi, þangað til við sjáumst aftur biðjum við góðan guð að geyma þig.

Anna Dögg, Arnar Már, Katrín Huld og Viktoría Ósk.