HINN 1. ágúst næstkomandi tekur dr. Sigrún Klara Hannesdóttir við starfi framkvæmdastjóra hjá NORDINFO en það er samnorræn stofnun sem stýrir samvinnuverkefnum á sviði rannsóknabókasafna og upplýsingamála.
Framkvæmdastjóri NORDINFO

Vill efla

þátttöku jaðarþjóðanna

HINN 1. ágúst næstkomandi tekur dr. Sigrún Klara Hannesdóttir við starfi framkvæmdastjóra hjá NORDINFO en það er samnorræn stofnun sem stýrir samvinnuverkefnum á sviði rannsóknabókasafna og upplýsingamála.

"Stofnunin sem er fjármögnuð af norrænu ráðherranefndinni var sett á stofn árið 1977 til að efla og styrkja samvinnu milli rannsóknarbókasafna á Norðurlöndum og hún er til húsa í Helsinki í Finnlandi," segir Sigrún Klara.

Hún segir að áður en NORDINFO var sett á stofn hafi bókasöfnin verið búin að vinna saman alla öldina að ýmiskonar verkefnum svo sem samræmingu á vinnulagi og bókaskrárgerð og þau höfðu einnig samvinnu um aðföng.

­ Í hverju verður starf þitt fólgið?

"NORDINFO er fyrst og fremst ætlað að stýra þeim verkefnum sem eru fjármögnuð af stofnuninni en alls hefur hún um 13 milljónir íslenskra króna til ráðstöfunar í þeim tilgangi. Styrkveitingar hljóta ýmis þróunar- og rannsóknarverkefni sem norrænar stofnanir eða einstaklingar í að minnsta kosti tveimur eða fleiri norrænum löndum standa að og sömuleiðis fjármagnar NORDINFO ýmiskonar norrænar ráðstefnur, fundi og útgáfur á fyrirlestrum."

Sigrún Klara segir að ennfremur hafi verið gerð tilraun fyrir tveimur árum á vegum stofnunarinnar að styrkja þrjár stofnanir, svokallaðar "Center of Excellance", sem fást við að þróa ákveðin viðfangsefni sem eiga eftir að koma allri norrænni upplýsinganotkun til góða. "Ein stofnunin er í Finnlandi og hennar viðfangsefni er rafræn útgáfa, önnur slík er í tengslum við Þjóðarbókasafn Norðmanna og verkefni hennar er að þróa aðferðir við að koma gömlu safnefni í rafrænt form. Hluti af því verkefni var unninn hér á landi þegar söguleg kort Landsbókasafnsins voru sett á rafrænt form."

Þá segir Sigrún að þriðja stofnunin sé í Danmörku, Norræna alnetsmiðstöðin, og er henni ætlað að vera ráðgjafarstofnun og vinna að bættum aðgangi á Netinu.

­ Munt þú koma með nýjar áherslur sem framkvæmdastjóri stofnunarinnar?

"Það er auðvitað gengið útfrá því að nýjum framkvæmdastjóra fylgi nýjar áherslur og það eru aðallega tvö mál sem ég vil í þessu sambandi setja á oddinn.

Í fyrsta lagi þá vil ég reyna að styrkja jaðarþjóðirnar eins og Færeyjar og Grænland en þau lönd hafa lítið komið inn í verkefni á vegum NORDINFO. Ég vil gjarnan heimsækja stofnanir í þessum löndum og athuga hvort ekki er eitthvað sérstakt sem NORDINFO geti gert fyrir þær. Þá vil ég einnig auka þátttöku Íslendinga í verkefnum hjá stofnuninni. Við komum oft of seint inn í verkefni og höfum því ekki getað haft áhrif á hvernig verkefnin hafa verið byggð upp.

Í öðru lagi hef ég áhuga á rannsóknarnámi fyrir bókasafnsfræðinga og vil gjarnan vinna að þessum málum með bókavarðaskólunum. Það er grundvallaratriði að bókasafnsfræðingar séu vel menntaðir til að bæta og auðvelda upplýsingastreymi innan samfélagsins og til vísindamanna."

Sigrún segir að nýlega hafi verið gerð gæðaúttekt á störfum stofnunarinnar og ein af niðurstöðum þeirrar úttektar var að stofnunin þyrfti að verða sýnilegri en hún er. "Því verður það líklega eitt af mínum fyrstu verkum að vinna að öflugri kynningaráætlun og heimsækja flestar þær stofnanir sem hlotið hafa styrk frá NORDINFO."

Sigrún bætir við að hún hafi líka áhuga á því að stofnunin leiti uppi verkefni og eigi því frumkvæði á þessu sviði frekar en að bregðast einungis við aðstæðum.

­ Er stofnunin í samstarfi við Evrópusambandið?

"Eitt af því sem stendur til að efla í náinni framtíð er samvinna við Evrópusambandið og þær upplýsingastofnanir sem þar eru.

Við eigum við mörg sömu vandamál að glíma og allar upplýsingastofnanir í heiminum eins og bættan aðgang að rafrænum upplýsingum og höfundarréttarmál. Upplýsinganotkun er mál málanna í nútímanum og stofnun með þetta hlutverk getur því skipt miklu máli ef vel er að öllu staðið."

Sigrún Klara Hannesdóttir er fædd á Seyðisfirði árið 1943. Hún lauk BA-prófi í ensku frá Háskóla Íslands árið 1967, MA-prófi í bókasafns­ og upplýsingafræði frá Wayne State University í Detroit árið 1968 og doktorsprófi frá University of Chicago árið 1987.

Hún hefur kennt bókasafns­ og upplýsingafræði við Háskóla Íslands frá árinu 1975, sem prófessor frá árinu 1992.

Sigrún hefur tekið mikinn þátt í félagsmálum hérlendis og erlendis og er m.a. forseti Alþjóðlegu skólasafnasamtakanna (IALS). Hún var fyrsti formaður Íslandsdeildar IBBY.

Eiginmaður Sigrúnar Klöru, Indriði Hallgrímsson bókasafnsfræðingur, lést árið 1979. Hún á einn son, Hallgrím Indriðason blaðamann.

Norræn stofnun á sviði upplýsingamála

Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir