Sálin hans Jóns míns fagnar tíu ára hljómsveitarafmæli um þessar mundir og af því tilefni er ýmislegt á döfinni hjá sveitinni. Rakel Þorbergsdóttir hitti Guðmund Jónsson gítarleikara Sálarinnar fyrir skömmu.
Sálin hans Jóns míns svífur enn



Sálin hans Jóns míns fagnar tíu ára hljómsveitarafmæli um þessar mundir og af því tilefni er ýmislegt á döfinni hjá sveitinni. Rakel Þorbergsdóttir hitti Guðmund Jónsson gítarleikara Sálarinnar fyrir skömmu.

ÞAÐ VAR árið 1988 að hljómsveitin Sálin hans Jóns míns kom fyrst fram og spilaði meðal annars um verslunarmannahelgi á Melgerðismelum í Eyjafirði. Ótalmörg lög hafa litið dagsins ljós síðan "Kanínan" varð vinsæl þetta fyrsta sumar Sálarinnar, en tvö ný lög koma einmitt út á safnplötunni "Bandalög 8" síðar í mánuðinum.

"Við ætlum að spila víðs vegar um landið í allt sumar og fara svo í hljóðver í haust og gefa út stóra plötu fyrir næstu jól. Það eru liðin þrjú ár síðan stór plata kom frá okkur síðast," sagði Guðmundur, en Sálin mun spila á öllum helstu tónleikastöðum landsins í sumar.

Flýgur frá London

Síðastliðin tvö ár hafa Guðmundur og sambýliskona hans, Dóra Takefusa, búið í London ásamt syni Dóru. Guðmundur starfar hjá flugfélaginu Atlanta og ætlar að starfa þar í sumar samhliða spilamennskunni á Íslandi og hann kemur til með að fljúga heim til Íslands um hverja helgi. "Við fórum út til London með smá pening í vasanum en að öðru leyti með tvær hendur tómar. Ég talaði mig inn í vinnu hjá Atlanta og átti upphaflega bara að vinna í fjóra daga við að taka af bíl. Ég kunni á lyftara frá því ég vann á frystihúsinu hérna í gamla daga. Núna er ég kominn í skrifstofuvinnu hjá fyrirtækinu og líkar mjög vel. Það er mikill skilningur fyrir því að ég sé að "poppast" heima á Íslandi og ég fæ að vinna fríin af mér. Ég hefði aldrei fengið tilslakanir af þessu tagi hjá bresku fyrirtæki.

Mér finnst mjög gott að koma hingað af og til og spila. Við höfum ekki sama úthald og áður og markaðurinn býður ekki upp á það lengur að við séum að spila um hverja helgi."

"Nauðsynlegt að breyta til"

- Hefurðu ekkert reynt fyrir þér sem tónlistarmaður í London?

"Nei, auðvitað er maður alltaf með einhverjar þreifingar í gangi, en það er ekkert sem er í frásögur færandi á þessari stundu. Fyrsta árið prófaði ég að gamni að fara í áheyrnarprufur sem voru auglýstar en það var eins og að fara aftur í bílskúrinn. Svo vill maður helst vinna með sitt eigið efni. Ég gæti reynt að komast í hljómsveit og vonast til að verða heppinn eða vinna eitthvað í kringum mitt eigið efni. Núna er ég að reyna að koma mér upp aðstöðu heima til að semja."

- Er London er ekki full af íslenskum tónlistarmönnum?

"Það eru mjög margir íslenskir tónlistarmenn búsettir hérna og þetta fer að verða hljómsveitarhæft. Við búum til dæmis í Fullham, en þar búa einnig Jakob Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir og Friðrik Karlsson. Óskar Páll upptökumaður býr í sama húsi og ég og það eru margir Íslendingar sem búa í sömu götu og við. Þetta er mjög skemmtilegt samfélag."

- Þið eruð þá ekkert á leiðinni heim?

"Nei, ég held ekki. Okkur líður mjög vel þarna úti. Ég var alinn upp úti á landi og flutti til Reykjavíkur þegar ég var 17 ára en þá var ég alveg búinn að fá nóg af Skagaströnd. Það var sama sagan með Reykjavík, ég var eiginlega búinn að fá nóg þegar ég flutti út. Það er líka gaman að takast á við nýja borg og upplifa ólíka menningu. Það er mjög dýrt að búa í London en ef ég væri að hugsa um peninga þá væri ég heima að spila með Sálinni allt árið eða í einhverjum árshátíðarhljómsveitum. Þetta er bara spurning um eftir hverju fólk sækist."

- Eru ekki mikil viðbrigði að reyna fyrir sér erlendis?

"Eftir að hafa unnið við tónlist í fimmtán þá hefur maður greiðan aðgang að fjölmiðlum hérna heima. Það er mjög erfitt að verða sér úti um fjölmiðlaumfjöllun í Bretlandi og erfitt ferli. Allt í einu er maður kominn á núllpunkt. Það er hins vegar mjög gott, því það var orðið ansi þægilegt að búa á Íslandi. Í Englandi var allt erfitt þessi fyrstu tvö ár, jafnvel það að leita sér að íbúð. Og erfiðleikar gera ekkert annað en þroska fólk. Ég er þeirrar skoðunar að maður þurfi svona spark í afturendann annað slagið og ég í raun þrífst á því.

Sálin hans Jóns míns er eina hljómsveitin sem mig langar til að vera í á Íslandi og hvað getum við gert meira en við höfum gert síðustu tíu ár? Þess vegna var áskorun að prófa eitthvað nýtt og flytja úr landi."

Spilagleðin sem ræður ríkjum

- Halda Sálarmenn miklu sambandi sín á milli?

- Já, við gerum það. Það er svo mikill vinskapur orðinn á milli okkar, ég veit þetta hljómar eins og einhver klisja, en þetta er satt. Áður fyrr var það metnaðurinn sem rak okkur áfram en núna komum við fyrst og fremst saman af því okkur finnst gaman að spila. Við erum þrír í hljómsveitinni sem búum erlendis núna. Atli hljómborðsleikari býr í Bandaríkjunum þar sem hann lærði að búa til kvikmyndatónlist og Tommi trommari er í margmiðlunarnámi í Flórída. Hann kemst ekki heim í sumar og því höfum við fengið Jóhann Hjörleifsson til að spila á trommurnar með okkur en Atli kemur tímabundið heim."

Að sögn Guðmundar hafa íslenskir tónlistargagnrýnendur aldrei verið hrifnir af tónlist Sálarinnar og svokallað vinsælda- eða sveitaballapopp sé mikil lágmenning í þeirra huga. "Mér finnst skemmtilegast að spila fyrir krakkana úti á landi. Fyrsta ballið okkar var til dæmis í Miðgarði í fyrra og þar var húsið næstum fullt af 16 ára unglingum og ég, 35 ára gamall maðurinn, hugsaði með mér að nú væri kominn tími til að hætta. Svo byrjaði maður að spila tónlistina okkar, það er ótrúlegt orkuflæði á milli okkar, krakkarnir kunna hvert einasta lag utan að og mikil stemmning myndast. Þá rennur upp fyrir manni af hverju maður er að standa í þessu ár eftir ár. Það er þessi hráa orka sem maður hrífst á."

Sálin hans Jóns míns byrjar sumartónleikaferð sína í Sjallanum á Akureyri á föstudag en þaðan liggur leiðin til Selfoss þar sem sveitin mun halda uppi hinu eina sanna Sálarstuði á laugardagskvöldið.

Guðmundur Jónsson gítarleikari Sálarinnar Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson SÁLIN hans Jóns míns á tónleikum árið 1990, en liðsskipan sveitarinnar hefur aðeins breyst síðan þá.

HLJÓMSVEITIN mun hefja sumartónleikaferð sína um landið í Sjallanum á Akureyri á föstudagskvöldið.