WILD Things er sakamálasaga sem gerist í smábæ í Flórída þar sem spunninn er flókinn samsæris- og svikavefur. Það er ekki fyrr en í síðustu senu myndarinnar sem hið sanna kemur í ljós. Kelly Van Ryan (Denise Richards) er ung og fögur stúlka sem segir móður sinni (Theresa Russel) að námsráðgjafinn sinn, Sam Lombardo (Matt, Dillon) hafi nauðgað sér.
KVIKMYNDIR /STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýninga spennumyndina Wild Things með Kevin Bacon, Matt Dillon og Neve Campbell í aðalhlutverkum

Fallegt fólk, illt innræti

WILD Things er sakamálasaga sem gerist í smábæ í Flórída þar sem spunninn er flókinn samsæris- og svikavefur. Það er ekki fyrr en í síðustu senu myndarinnar sem hið sanna kemur í ljós.

Kelly Van Ryan (Denise Richards) er ung og fögur stúlka sem segir móður sinni (Theresa Russel) að námsráðgjafinn sinn, Sam Lombardo (Matt, Dillon) hafi nauðgað sér. Nokkrum dögum seinna berst önnur kæra á hendur Sam frá Suzie Toller (Neve Campbell). Til þess að verjast þessum ásökunum gengur Sam á fund Ken Bowden (Bill Murray) eina lögfræðingsins sem vill svo mikið sem líta við þessu máli sem virðist liggja svo ljóst fyrir. Kærendurnir eru afkomendur fólks sem bærinn þekkir og virðir en hinn kærði er frægur kvennabósi, aðfluttur og nýtur lítillar virðingar í samfélaginu í Blue Bay, Flórída.

Smám saman vindur þetta hneyksli upp á sig og lögreglumaðurinn sem rannsakar það, Ray Duquette (Kevin Bacon), kemst á snoðir um það að hér er á ferðinni samsæri sem hann er sjálfur að sogast inn í þar sem hver flækjan rekst á aðra og allir sitja á svikráðum við alla. Það kemur í ljós að þótt Blue Bay virðist vera fyrirmyndarsamfélag þar sem allt er slétt og fellt er fólkinu þar ekkert heilagt.

Upphafsmenn þess að ráðast í gerð myndarinnar Wild Things eru leikstjórinn John McNaughton, handritshöfundurinn Stephen Peters og leikarinn Kevin Bacon, sem er jafnframt einn framleiðenda myndarinnar.

McNaughton hefur áður gert myndirnar Mad Dog and Glory, The Borrowers og Henry: Portrait of a Serial Killer. Wild Things er allólík fyrri myndum leikstjórans enda er söguþráðurinn flókinn og frásögnin krefjandi. "Venjulega eru í kvikmyndum 2-3 aðalleikarar sem maður vinnur með allan tímann. En í Wild Things voru tíu leikarar saman við æfingar í tvær vikur. Verkefni leikaranna var mjög erfitt. Persónurnar ljúga hver að annarri í næstum því hverju einasta atriði. Það gerði það að verkum að þetta var krefjandi og erfitt ferli fyrir leikarana því að þeir þurftu í raun og veru að leika tvöfalt hlutverk," segir McNaughton. Hann segist gefinn fyrir glæpamyndir og dekkri hliðar sögunnar höfða til hans. "Jafnvel þótt sagan sé flókin þá gætu þessir atburðir gerst í raun og veru. Raunverulegt fólk gerir stundum svona heimskulega hluti," segir hann.

Aðalleikari myndarinnar er Kevin Bacon, þekktur úr myndum eins og Sleepers, The River Wild, A Few Good Men, Footloose og Diner.

Matt Dillon lék síðast í In and Out en er þekktastur fyrir leik í myndum á borð við The Outsiders, Rumble Fish, Singles og Drugstore Cowboy. Neve Campbell er þekktust sem leikkona í sjónvarpsþáttunum Party of Five en hefur undanfarin misseri leikið í myndum á borð við Scream og The Craft. Meðal annarra leikenda eru svo Bill Murray, úr Groundhog Day, Kingpin, Space Jam og fyrstu mynd McNaughtons, Mad Dog and Glory. Theresa Russel er þekkt úr Black Widow, Impulse og Razor's Edge. Svo er þarna gamla stjarnan Robert Wagner, best þekktur sem Hart í sjónvarpsþáttunum Hart to Hart.

Í AÐALHLUTVERKUM í Wild Things eru Denise Richards, Kevin Bacon, Neve Campbell og Matt Dillon.

HNEYKSLIÐ nær smám saman tökum á öllum bænum, þar á meðal kærendunum, Kelly (Denise Richards) og Suzie (Neve Campbell).

KEVIN Bacon og Neve Campbell í hlutverkum sínum í myndinni.