Borgarnesi-Skólahátíð Samvinnuháskólans var haldin laugardaginn 23. maí. Útskrifaðir voru 31 rekstrarfræðingur og 16 BS- rekstrarfræðingar. Bestum árangri rekstrarfræðinga náði Jón Ellert Sævarsson, en einnig náðu góðum árangri Jóna Soffía Baldursdóttir og Þórður Emil Ólafsson. Bestum árangri BS-rekstrarfræðinga náði Oddný Anna Björnsdóttir.
Samvinnuháskólinn á Bifröst 10 ára

80 ár frá stofnun

Samvinnuskólans

Borgarnesi - Skólahátíð Samvinnuháskólans var haldin laugardaginn 23. maí. Útskrifaðir voru 31 rekstrarfræðingur og 16 BS- rekstrarfræðingar. Bestum árangri rekstrarfræðinga náði Jón Ellert Sævarsson, en einnig náðu góðum árangri Jóna Soffía Baldursdóttir og Þórður Emil Ólafsson. Bestum árangri BS-rekstrarfræðinga náði Oddný Anna Björnsdóttir. Einnig náðu góðum árangri Unnur Ágústsdóttir og Árný Elfa Helgadóttir.

Við athöfnina veitti Axel Gíslason námsstyrk frá Vátryggingafélagi Íslands vegna góðs námsárangurs. Hlaut Jón Ellert Sævarsson styrkinn, að upphæð 150 þúsund krónur. Í máli rektors við athöfnina kom m.a. fram að í ár eru 10 ár liðin frá því hafin var háskólakennsla á Bifröst og 80 ár eru frá stofnun forvera Samvinnuháskólans, Samvinnuskólans í Reykjavík. Á nýliðnu skólaári stunduðu um 120 nemendur nám við Samvinnuháskólann. Á vormisseri voru við skólann þrír þýskir nemendur. Af þeim sökum fór allt nám í rekstrarfræðideild II fram á ensku. Á árinu voru stofnaðir Starfsmannagarðar Samvinnuháskólans til að sjá um byggingar og rekstur íbúða fyrir starfsmenn. Verða á næstunni byggðar fjórar íbúðir. Unnið er að stofnun Hollvinasamtaka Samvinnuháskólans.

Að lokinni útskriftarathöfninni gróðursettu nýútskrifaðir rekstrarfræðingar trjáplöntur sunnan við skólahúsin á Bifröst. Plönturnar eru gjöf frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga.

Eftirtalin útskrifuðust sem rekstrarfræðingar:

Björg Elsa Sigfúsdóttir, Bryndís Guðnadóttir, Brynja Vignisdóttir, Brynjar Sigurðsson, Dagný Þórólfsdóttir, Geirlaug Jóhannsdóttir, Guðmundur Eyþórsson, Guðmundur Helgi Ólafsson, Guðmundur Rúnar Svavarsson, Guðrún Elsa Þorkelsdóttir, Gunnar Bjarni Ólafsson, Gylfi Þór Gylfason, Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, Hrefna Sigmarsdóttir, Hörður Þorsteinn Benónýsson, Ingunn Stefánsdóttir, Jón Ellert Sævarsson, Jón Guðmundur Ottósson, Jón Jónasson, Jón Trausti Ólafsson, Jóna Soffía Baldursdóttir, Jórunn Helena Jónsdóttir, Linda Rut Benediktsdóttir, Magnús Gunnarsson, Margrét Helgadóttir, Pétur Þórðarson, Rósa Hjartardóttir, Stefán Sveinbjörnsson, Svanheiður Ingimundardóttir, Þór Kjartansson, Þórður Emil Ólafsson.

Eftirtalin luku BS-prófi í rekstrarfræðum:

Arinbjörn Kúld, Árný Elfa Helgadóttir, Bragi Hinrik Magnússon, Elsa M. Ágústsdóttir, Hallgrímur Bergsson, Helgi Bogason, Ingólfur Steingrímsson, Lóa Dögg Pálsdóttir, Oddný Anna Björnsdóttir, Ólafur Helgason, Óskar Haraldsson, Rakel Ýr Guðmundsdóttir, Sigurjón Haraldsson, Steinn Símonarson, Unnur Ágústsdóttir, Þóra Kristín Sigurðardóttir.



Morgunblaðið/Árni Hallgrímsson Á MYNDINNI eru þau sem útskrifuðust með BS-próf í rekstrarfræðum frá Samvinnuháskólanum á Bifröst.



Morgunblaðið/Árni Hallgrímsson NÝÚTSKRIFAÐIR rekstrarfræðingar frá Samvinnuháskólanum á Bifröst.